Tölvunámskeið fyrir eldri borgara með lögheimili í Svalbarðsstrandarhreppi hefst mánudaginn 13. apríl 2026

Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem eru lengra komnir og verður haldið í Valsárskóla. Tölvur á staðnum og námskeiðið fer fram í stofunni Straumur á annarri hæð.

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu forritin í Google fjölskyldunni, hvernig gott er að leita á netinu og hvernig nýta má gervigreind í hin ýmsu verkefni.

Námskeiðin verða vikulega á mánudögum frá kl. 15:00 til 16:00 í sex skipti, frá 13. apríl - 18. maí.

Kennari er Sigrún Rósa Kjartansdóttir