Umhverfisdagur Svalbarðsstrandar

Umhverfisdagur Svalbarðsstrandar verður haldinn laugardaginn 23. maí.

Mæting við Ráðhúsið kl. 10 og svæðum úthlutað.

Ruslatínsla meðfram þjóðveginum frá kl. 10-12 og pylsur grillaðar að því loknu.

Íbúar hreppsins eru hvattir til að taka höndum saman við að fegra umhverfið og njóta samveru, margar hendur vinna létt verk!