Umhverfisverðlaunin 2022 - Tilnefningar óskast

Umhverfis- og atvinnumálanefnd óskar eftir tillögum frá íbúum Svalbarðsstrandarhrepps til umhverfisviðurkenningar 2022. Annarsvegar fyrir snyrtilegt íbúðarhús og hinsvegar rekstraraðila og nærumhverfi þess.

Við biðjum ykkur að horfa í kringum ykkur og senda tillögur með stuttum rökstuðningi hvers vegna viðkomandi á skilið viðurkenningu einning má senda inn ábendingu vegna einstaklinga sem hafa beitt sér eða unnið gott starf í þágu umhverfismála í sveitarfélaginu.

Tilnefningar má senda á netfangið postur@svalbardsstrond.is

Framlengdur frestur til að senda inn tilnefningar rennur út þriðjudaginn 17. janúar 2023.