Umhverfisviðurkenningar 2023 - Tilnefningar óskast

Við minnum á tilnefningar til Umhverfisviðurkenningar 2023. 

Íbúar og fyrirtæki í hreppnum hafa notað sumarið vel til þess að snyrta í kringum sig. 

Umhverfis- og atvinnumálanefnd óskar annarsvegar eftir tillögum frá íbúum fyrir snyrtilegt íbúðarhús og hinsvegar rekstraraðila og nærumhverfi þess.

Við biðjum ykkur að horfa í kringum ykkur og senda tillögur með stuttum rökstuðningi hvers vegna viðkomandi á skilið viðurkenningu. Einnig má senda inn ábendingu vegna einstaklinga sem hafa beitt sér eða unnið gott starf í þágu umhverfismála í sveitarfélaginu.

Vinsamlega fyllið út eyðublað hér á síðunni.