Valsárskóli óskar eftir umsjónaraðila frístundar, starfsmanni í frístund og skólaliða. Frístund er opin frá 13-16:15 og starf skólaliða er fyrri hluta dags. Störfin geta þannig verið hlutastörf eða heil staða.
Ráðning er frá 20. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.
-Vinnur í frístund og ber faglega ábyrgð á skipulagningu, framkvæmd og daglegri stjórnun frístundastarfs.
-Verkstýrir og skipuleggur verkefni nemenda í frístund, veitir faglegan stuðning og skiptir verkum milli starfsmanna.
-Er í nánu samstarfi við skólastjóra auk foreldra og forráðamanna.
-Ber ábyrgð á að öryggisreglur séu virtar og stuðlar að vellíðan barna.
-Önnur verkefni skv. starfslýsingu ásamt verkefnum sem skólastjóri felur starfsmanni.
Skólaliði:
-Almenn gæsla inni og úti ásamt eftirliti með nemendum í búningsklefum.
-Starfar samkvæmt stefnu og starfsáætlun skólans.
-Tilfallandi stuðningur og aðstoð við nemendur á skólatíma og í tómstundastarfi.
-Önnur verkefni skv. starfslýsingu ásamt verkefnum sem skólastjóri felur starfsmanni.
Starf skólaliða felur meðal annars í sér reglubundna viðveru og gæslu inni í búnings- og sturtuaðstöðu drengja. Vegna eðlis starfsins og sjónarmiða um friðhelgi, öryggi og velferð nemenda er leitað eftir karlkyns starfsmanni í þetta tiltekna verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
-Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
-Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki, samstarfshæfni og jákvæðni til að starfa í metnaðarfullu umhverfi
-Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
-Reynsla sem nýtist í starfi
-Stundvísi og samviskusemi
-Góð íslenskukunnátta
-Reynsla af starfi í grunnskóla er kostur.
-Aðlögunar- og samskiptafærni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
-Skipulagsfærni, stundvísi og reglusemi.
-Lausnamiðuð hugsun og færni til að sinna umbótum í skólastarfi.
-Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
-Jákvæðni og sveigjanleiki
-Áhugi á að taka þátt í þróun skólastarfs og að taka að sér fjölbreytt verkefni.
Valsárskóli er fámennur skóli á Svalbarðseyri, í 12 km fjarlægð frá Akureyri. Einkunnarorð skólans er umhyggja, virðing, metnaður og gleði. Nánari upplýsingar um Valsárskóla er hægt að sjá á https://skolar.svalbardsstrond.is og við hvetjum umsækjendur til að kynna sér starf skólans nánar þar. Vakin er athygli á jafnréttisstefnu Svalbarðsstrandarhrepps um jafnan hlut kynja í störfum. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2026.
Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda. Umsókn skal skila á netfangið svala@svalbardsstrond.is. Nánari upplýsingar veitir Svala Einarsdóttir skólastjóri: 464-5510, 691-0176 og í tölvupósti.
Svalbarðsstrandarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
https://alfred.is/starf/umsjonarmadur-fristundar-starfsmadur-fristundar-og-skolalidi
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801