Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra hefur verið opnaður

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra og er umsóknarfrestur til 21. október kl. 14:00

Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja við verkefni sem falla að Sóknarátætlun Norðurlands Eystra í þremur flokkum, atvinnulífs, blómlegra byggða og stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar.

Rafrænn kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 29. september kl. 12:00 á Teams. Á fundinum verður farið yfir helstu atriði varðandi umsóknir í sjóðinn og umsóknarferlið.

Allt starfsfólk SSNE veitir ráðgjöf í tengslum við verkefni í Uppbyggingarsjóð. Þú getur pantað hjá þeim fjar- eða staðfundi.

Frekari upplýsingar má finna hér