Útiskóli að sumri - Barnastarf sumarið 2021

Útiskóli að sumri - Barnastarf sumarið 2021

 

Útiskólinn er hugsaður sem ævintýraleiðangur fyrir börn í 1– 4. bekk, um umhverfi okkar og náttúruna hér á Svalbarðsströnd.

Börn sem fædd eru árið 2015 eru velkomin en forráðamenn þurfa að fylgja þeim í Útiskólann.

Skólinn fer fram þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga í júlí milli klukkan 13:00 og 16:15. Ef dagskrá breytist er það auglýst sérstaklega. Börn koma klædd eftir veðri og hafa með sér nesti.

Tímasetningar og verð verða auglýst síðar.

Dagskrá/tímasetning verður auglýst nánar en gert er ráð fyrir að hvert námskeið standi yfir í eina viku (þrjá daga).

Sumarnámskeið Húlladúllunnar er fimm daga námskeið og er í boði fyrir aldurshópana 6-9 ára og 10 ára og eldri.

Við hittumst í Valsárskóla, borðum nestið okkar í leiðangrinum og ljúkum ævintýraleiðöngrum í Valsárskóla, nema annað sé tilkynnt. Dagskrá getur breyst eftir veðri.

NÁMSKEIÐ SUMARSINS:

SKAPANDI SAMVERA

SKÓLAGARÐAR

SMÍÐANÁMSKEIÐ OG VEIÐI

SKÁTANÁMSKEIÐ

LEIKJANÁMSKEIÐ

ÍÞRÓTTASKÓLI

FRISBÍNÁMSKEIÐ

ÁLFAR OG TRÖLL

SUMARNÁMSKEIÐ HÚLLADÚLLU

HÚLLAHRINGJAGERÐARSMIÐJA

HJÓLANÁMSKEIÐ

VIÐGERÐIR HJÓLA OG SKOÐUN

SUMARLESTUR

SKRÁ ÞARF Á NÁMSKEIÐIN OG VIÐ ÓSKUM EFTIR ÞVÍ AÐ FORRÁÐAMENN SKRÁI BÖRN Í SÍÐASTA LAGI, VIKU ÁÐUR EN FARIÐ ER. VIÐ ÞURFUM T.D. AÐ VITA HVERSU STÓRA RÚTU ÞARF EÐA HVORT VIÐ ÞURFUM AÐ FJÖLGA STARFSMÖNNUM OG ÞVÍ GOTT AÐ ÞIÐ PANTA EINS FLJÓTT OG HÆGT ER.

FYRIRKOMULAG SKRÁNINGAR, EINSTÖK NÁMSKEIÐ OG VERÐ VERÐA AUGLÝST SÍÐAR