VALSÁRHVERFI

Föstudaginn 3. júlí var skrifað undir samning við fyrirtækið Finnur ehf um framkvæmdir við Bakkatún. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í þessari viku, viku 28. Framkvæmdir standa yfir í c.a. þrjár vikur og lóðir við Bakkatún verða auglýstar til úthlutunar á næstu dögum. Upplýsingar um lausar lóðir í Valsárhverfi, sem þegar hafa verið auglýstar til úthlutunar, er hægt að nálgast á heimasíðu hreppsins.