80-100% staða grunnskóla-/umsjónarkennara sem annast almenna kennslu og hefur umsjón með námshóp á yngsta stigi. Staðan er til eins árs.
Valsárskóli er fámennur skóli á Svalbarðseyri, í 12 km fjarlægð frá Akureyri. Einkunnarorð skólans er umhyggja, virðing, metnaður og gleði. Nánari upplýsingar um Valsárskóla er hægt að sjá á https://skolar.svalbardsstrond.is og við hvetjum umsækjendur til að kynna sér starf skólans nánar þar. Vakin er athygli á jafnréttisstefnu Svalbarðsstrandarhrepps um jafnan hlut kynja í störfum. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Sjá auglýsingu inn á Alfreð hér
Helstu verkefni og ábyrgð
● Stuðlar að velferð og árangri nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
● Vinnur samkvæmt stefnu skólans
● Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
● Önnur verkefni skv. starfslýsingu ásamt verkefnum sem skólastjóri felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
● Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
● Umsjónarkennari þarf að hafa haldgóð þekking á kennslufræði og leikni í fjölbreyttum kennsluháttum eins og Byrjendalæsi
● Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
● Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki, samstarfshæfni og jákvæðni til að starfa í metnaðarfullu umhverfi
● Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
● Reynsla sem nýtist í starfi
● Stundvísi og samviskusemi
● Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
Fæði
Umsóknarfrestur er til og með 13. maí 2025. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda. Umsókn skal skila á netfangið maria@svalbardsstrond.is. Nánari upplýsingar veitir María Aðalsteinsdóttir skólastjóri: 4645510, 8640031 og í tölvupósti.
Svalbarðsstrandarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801