Vetrarsólstöðuviðburður Píeta samtakanna á Norðurlandi 2023

Innihaldsrík samverustund á dimmasta kvöldi ársins haldin í minningu þeirra sem látist hafa fyrir eigin hendi og hvatning til þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir um að gefast ekki upp heldur þiggja hjálp og velja lífið.

Hist er við Svalbarðseyrarvita föstudaginn 22. desember kl. 19:30 þar sem minningarstund verður haldin. Hægt verður að kaupa kerti til styrktar Píeta samtakanna og kveikja á þeim við vitann. Einnig skrifum við skilaboð um söknuð og ást á gula vegginn á vitanum og yfir jól og áramót munu kveðjurnar standa á veggnum undir blikkandi ljósi og minna hvern sem kemur á að ástin er eilíf.

Öll eru velkomin.
Ókeypis aðgangur.

Viðburður samtakanna á Facebook