Viðtalstími sveitarstjórnarfulltrúa þriðjudaginn 10. nóvember.
Sveitarstjórnarfulltrúarnir Bjarni Þór Guðmundsson og Gréta María Halldórsdóttir verða til viðtals á skrifstofu sveitarfélagsins þriðjudaginn 10. nóvember kl 16:30- 18:00.
Íbúar þurfa að bóka viðtal fyrir fram í gegnum tölvupóst á netfangið postur@svalbardsstrond.is eða í síma 4645500. Gert er ráð fyrir 20-30 mínútna viðtölum einnig er óskað eftir stuttri lýsingu á erindi við bókun svo sveitarstjórnarfulltrúar geti undirbúið sig eftir því sem við á.
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801