Vinnuskólinn sumarið 2025

Skráning í Vinnuskólann er enn opin og við minnum á kynningarfund um starfsemi sumarsins í Valsárskóla fimmtudaginn 5. júní kl. 14. Foreldrar/forráðamenn eru velkomnir með á fundinn.

Vinnuskóli Svalbarðsstrandarhrepps er starfræktur yfir sumarmánuðina, í ár hefst vinnan 11. júní og er í boði fram í miðjan ágúst.

Öll ungmenni í 7. - 10. bekk grunnskólans geta sótt um starf í Vinnuskólanum. Nemendur í 7. bekk vinna tvo fyrriparta í viku á þriðjudögum og fimmtudögum. Vinnutími nemenda í 8. – 10. bekk er mánudaga – fimmtudaga frá 8-16 og 8-12 á föstudögum.

Rafræn skráning og nánari upplýsingar má finna hér á síðunni.

Umhverfisviðurkenning Vinnuskólans 2024