Vinnuskólinn sumarið 2026

Skráning í Vinnuskóla Svalbarðsstrandarhrepps er opin og verður kynningarfundur um starfsemi hans haldinn í Valsárskóla miðvikudaginn 10. júní kl. 15:30. Foreldrar/forráðamenn eru velkomnir að fylgja börnum sínum og fræðast um verkefni sumarsins, vinnureglur og launakjör. Fyrsti vinnudagur nemenda 8.-10. bekkjar er þriðjudagurinn 16. júní og nemendur 7. bekkjar mæta í fyrsta sinn fimmtudaginn 18. júní.

Öll ungmenni í 7. - 10. bekk grunnskólans geta sótt um starf í Vinnuskólanum. Nemendur í 7. bekk vinna tvo fyrriparta í viku á þriðjudögum og fimmtudögum. Vinnutími nemenda í 8. – 10. bekk er mánudaga – fimmtudaga frá 8-16 og 8-12 á föstudögum.

Rafræn skráning og nánari upplýsingar má finna hér á síðunni.