Sumarsirkus húlladúllunnar á Svalbarðsströnd

Viðburðir
6. júl

Aldur: 6 ára og eldri. (Hópaskipting: 6-9 ára + 10 ára og eldri)
Tímabil: 5. – 9. júlí
Klukkan 9:00 – 12:00 fyrir 6-9 ára og 13:00 – 16:00 fyrir 10 ára og eldri.
Kennslustaður: Íþróttahúsinu Svalbarðsströnd.
Verð: 20.000
Fjölskylduafsláttur: 10%

Nemendur kynnast töfrum sirkuslistanna og spreyta sig á fjölbreyttum sirkusáhöldum. Í lok námskeiðsins bjóðum við fjölskyldu og vinum til sannkallaðrar sirkusveislu þar sem við leikum listir okkar og leyfum gestum okkar að spreyta sig!Við munum húlla húllahringjum, læra loftfimleika í silki, djöggla slæðum, boltum og hringjum, dansa með fimleikaborða, leika okkur að blómaprikum, kínverskum jójóum og sveiflusekkjum, læra sirkusfimleika og akró, láta eins og alvöru trúðar, vagga á veltibrettum, halda jafnvægi á töfrafjöðrum og leika kúnstir með kínverska snúningsdiska.Áhersla er lögð á sköpunargleði, samvinnu og það að þáttakendur uppgötvi og njóti eigin styrkleika. Sirkuslistirnar styrkja líkamlega getu, jafnvægi og liðleika en þroska líka einbeitingu, styrkja sjálfsmynd og kveikja í ímyndunarafli og sköpunargleði.Húlladúllan er sjálfstætt starfandi sirkuslistakona, búsett á Ólafsfirði. Hún er lærður sirkuskennari og hefur kennt og sýnt með Sirkus Íslands og breska sirkusnum Let’s Circus auk þess að koma fram á ýmsum viðburðum á alþjóðlegri grundu.

ENGLISH

Age: 6 years and up. (the group will be divided into 6-9 year olds and 10 years and older)
When: July 5th – 9th.
What time: 6-9yrs olds: 09:00 – 12:00 and 10yrs and older: 13:00 – 16:00.
Where: The sportshall at Svalbarðsstrandarhreppur.
Price: 20.000
Sibling discount: 10%

Participants will experience the magic of the circus world and learn how to have fun with all kinds of circus toys and activities. At the end of the week parents and family will be invited to see how much we have learnt during the week. Activities include: Hula-hooping, juggling, aerials in silks, flowersticks, diabolos, poi, acrobatics, clowning, rola-bola, balance feathers, chinese spinning plates and all kind of games.

The main teacher and organizer of the programme is Unnur María Máney Bergsveinsdóttir, also known as Húlladúllan. She has over a decades worth of experience as as circus teacher and artist, both in Iceland and in Mexico, the Uk and France. She has completed internation diplomas as a hoop instructor and as a social circus teacher.