Geldingsárhlíð, Svalbarðsstrandarhreppi – kynning á deiliskipulagstillögu á fyrir íbúðarsvæði ÍB23 og ÍB24

Geldingsárhlíð, Svalbarðsstrandarhreppi – kynning á deiliskipulagstillögu á fyrir íbúðarsvæði ÍB23 og ÍB24

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum 10. janúar sl. að vísa tillögu á deiluskipulagi í Geldingsárhlíð í auglýsingarferli skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsverkefnið snýr að skipulagningu fimm íbúðarlóða á svæði sem skilgreint er sem íbúðarsvæði ÍB23 og ÍB24 í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins.

 

Deiliskipulagstillaga liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 19. janúar til 2. mars 2022 og er auk þess aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, svalbardsstrond.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til miðvikudagsins 2. mars 2022 til að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á sbe@sbe.is.

 

Skipulags- og byggingarfulltrúi

 

Uppdráttur