Gildistaka deiliskipulags Kotabyggðar auglýst

Auglýsing um gildistöku deiliskipulags Kotabyggðar birtist í B-deild stjórnartíðinda þann 21. febrúar síðastliðinn. Skipulagssvæðið er um 12,7 ha að stærð, sunnan og vestan við Veigastaðaveg nr. 828. Deiliskipulagsáætlunin kveður á um breytingu á hluta Kotabyggðar úr frístundabyggð yfir í íbúðarbyggð. Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir 20 íbúðarhúsalóðum og 21 lóð fyrir frístundahús. Í skipulagsáætluninni er leitast við að frístundabyggð annars vegar og íbúðar­byggð hins vegar myndi samfelldar heildir. Allar lóðir á svæðinu tengjast um eina vegtengingu frá Veiga­staða­vegi nr. 828, að lóð nr. 6 frátalinni sem tengist Veiga­staða­vegi beint.