Grenndarkynning - Dúkskemma á Svalbarðseyri

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur ákveðið að láta fara fram grenndar­kynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna umsóknar Kjarnafæðis ehf. um leyfi til að reisa 150 m2 plastdúkaskemmu við suðurgafl vinnsluhúsnæðis fyrir­tækisins á Svalbarðseyri sbr. meðfylgjandi teikningu. Byggingareyfi yrði veitt tímabundið til tveggja ára og eigendum gert að taka niður mannvirkið að þeim tíma loknum.

Frestur til að skila athugasemdum og ábendingum er 4 vikur frá dagsetningu þessa bréfs, þ.e. til og með 28. september 2011. Litið verður svo á að þeir sem ekki gera athugasemdir séu samþykkir fyrirhugaðri framkvæmd.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps í Ráðhúsinu á Svalbarðsströnd eða í síma 462 4320 á opnunartíma skrifstofunnar, virka daga kl. 8:30-12 og 13-16.