Grenndarkynning - Hjartað slær í Vaðlaheiði

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur ákveðið að láta fara fram grenndar­kynningu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna byggingar á "Hjartað slær í Vaðlaheiði" sbr. meðfylgjandi teikningu.

Stærð og lögun Hjartans er eins og fram kemur á meðfylgjandi skipulagsuppdrætti

Frestur til að skila athugasemdum og ábendingum er 4 vikur frá ætlaðri móttöku þessa bréfs, þ.e. til og með 18. apríl 2016. Litið verður svo á að þeir sem ekki gera athugasemdir séu samþykkir fyrirhugaðri framkvæmd.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps í Ráðhús­inu á Svalbarðseyri eða í síma 464 5500 á opnunartíma skrifstofunnar, virka daga kl. 10-12 og 13-15. Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið postur@svalbardsstrond.is.

Teikning - afstöðumynd
Grenndarkynning - eyðublað