Kjörstjórn

2. fundur 15. júní 2016 kl. 19:00
Nefndarmenn
  • Edda G. Aradóttir formaður
  • Stefán Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Sigurður Halldórsson varamaður
  • Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri

2. fundur kjörnefndar Svalbarðsstrandarhrepps 2014 - 2018 var haldinn í Ráðhúsinu Svalbarðseyri, miðvikudaginn 15. júní 2016 kl. 19:00.

 

Mættir voru Edda G. Aradóttir formaður, Stefán Sveinbjörnsson aðalmaður, Sigurður Halldórsson varamaður og Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri.

Dagskrá:

  1. Undirbúningur fyrir forsetakosningar þann 25. júní næstkomandi.

 

Nokkur atriði þurfa að vera í lagi.

Góð nettenging, tölva, prentari og skanni þurfa að vera á staðnum.

Þrír kjörklefar verða á staðnum og góð aðstaða fyrir kjörstjórn.

Sveitarstjóra og húsverði er falið að finna kjörklefana og setja þá upp.

Dyravörður verður Hanna Dóra Ingadóttir.

Kjörstjórn mætir ásamt sveitarstjóra kl. 09:00 þann 25/6.

Dreifibréf verður sent út strax eftir helgi en auglýsing um kosningarnar sett á heimasíðu sveitarfélagsins á morgunn.

 

Auglýsingin er svohljóðandi:

 

Kjörfundur í Svalbarðsstrandarhreppi vegna forsetakosninga laugardaginn 25. júní 2016 hefst kl. 10:00. Kosið verður á skrifstofu sveitarfélagsins.

Stefnt er að lokum kjörfundar kl. 18.00 en tekið skal fram að ekki má loka kjörstað fyrir kl. 22 nema kjörfundur hafi staðið í átta tíma og hálftími sé liðinn frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.

Kjósendur eru því hvattir til að mæta nægilega snemma til að tryggja að þeir geti greitt atkvæði. Ennfremur eru kjósendur beðnir að hafa skilríki meðferðis.

Nánari upplýsingar um forsetakosningarnar er að finna á http://www.kosning.is/

 

Fundi slitið kl. 19:47