Kjörstjórn

10. fundur 10. apríl 2026 kl. 12:00 - 12:45 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Bryndís Hafþórsdóttir formaður
  • Vignir Sveinsson
  • Heiðdís Lóa Ben Pálsdóttir
Starfsmenn
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

S2205008 - Skipan í nefndir á kjörtímabilinu 2022-2026

 

Skipan kjörnefndar fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026

 

 

Vegna tengsla við einstaklinga í framboði hafa formaður kjörstjórnar Edda Aradóttir og 1. varamaður kjörnefndar Ingibjörg Jóhannesdóttir sagt sig frá störfum við sveitarstjórnarkosningarnar í ár. Annar varamaður Heiðdís Lóa Ben Pálsdóttir er því kölluð inn fyrir Eddu Aradóttur.

Kjörnefnd hefur einnig ákveðið að Bryndís Hafþórsdóttir gegni formennsku kjörnefndar yfir sveitarstjórnarkosningarnar.
Samþykkt

2.

S2603006 - Sveitarstjórnarkosningar 2026

 

Kjörstjórn fjallar um þau atriði sem þarf að framkvæma/undirbúa í aðdraganda kosninga.

 

Kjörstjórn fór yfir pöntunarform fyrir kjörgögn og staðfesti það magn sem skrifstofustjóri á að panta.
Skrifstofustjóri er búinn að panta nýja kjörkassa sem notaðir verða við kosningarnar. Einn stór kassi verður við almennar kosningar en annar lítill mun safna saman utankjörfundaratkvæðum hjá sýslumanninum á Akureyri.
Skrifstofustjóra falið að ganga frá prentun atkæðaseðla fyrir kosningarnar.

Það er búið að taka frá Valsárskóla undir kosningarnar. Undirbúningur kjörstaðar fer fram vikuna fyrir kosningar.

Samþykkt

3.

S2603006 - Sveitarstjórnarkosningar 2026

 

Móttaka og yfirferð framboða.

Borist hafa gögn þriggja framboðslista inn á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps.

X-H Strönd til framtíðar
X-S Samstaða
X-Ö Ströndungur

Kjörstjórn hefur yfirfarið þau gögn sem eru lögð fram.

Allir frambjóðendur eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
Allir listar hafa skilað inn yfir 20 gildum meðmælum.

Skrifstofustjóra falið að boða umboðsmenn framboða á fund til þess að tilkynna þeim að framboðslistar þeirra séu gildir.

Samþykkt

 

   

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:45.