Skipulagsnefnd

1. fundur 12. ágúst 2026 kl. 09:00 - 10:30 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Bjarni Þór Guðmundsson formaður
  • Harpa Barkardóttir
  • Guðmundur Emilsson
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

1.

S2608002 - Skipting verka innan nefndar.

 

Formaður og ritari skipulagsnefndar ákveðin fyrir kjörtímabilið 2026-2030.

 

Skipulagsnefnd útnefnir Bjarna Þór Guðmundsson sem formann skipulagsnefndar og Fannar Frey Magnússon skrifstofustjóra sem ritara nefndar.

Bjarni Þór tók við fundarstjórn sem formaður nefndarinnar í kjölfarið.

 

   

2.

S2505013 - Vaðlaborgir B - íbúðarbyggð - beiðni um heimild til að vinna deiliskipulag

 

Tekin fyrir að nýju tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar í Vaðlaborgum B. Vinnslutillaga var kynnt frá 9. júní til 7. júlí 2026 og bárust alls sex athugasemdir á kynningartímanum. Jafnframt liggur fyrir staða undanþágubeiðni vegna fjarlægðar byggingarreita tveggja austustu lóða frá Veigastaðavegi, en óskað hefur verið eftir nánari rökstuðningi fyrir undanþágunni.

 

 

 

Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps þakkar fyrir framkomnar athugasemdir við vinnslutillöguna. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Vaðlaborga B verði vísað í auglýsingu skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að fenginni undanþágu frá fjarlægðarmörkum vegna byggingarreita tveggja austustu lóða. Skipulagshönnuði er falið að hafa framkomnar athugasemdir til hliðsjónar við áframhaldandi vinnslu tillögunnar.

Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps telur sérstakar aðstæður á svæðinu styðja veitingu undanþágu frá fjarlægðarmörkum vegna byggingarreita í Vaðlaborgum B. Norðan Vaðlaborga B liggur íbúðar- og frístundasvæðið Kotabyggð, sem þegar er byggt að hluta. Þar er m.a. gata samsíða Veigastaðavegi með níu íbúðarlóðum, Kotabyggð 44-52, sem allar eru innan 100 m frá Veigastaðavegi. Átta þeirra hafa verið byggðar frá árinu 2018 og standa íbúðarhús austan götunnar í um 18-22 m fjarlægð frá Veigastaðavegi. Jafnframt er þar ein óbyggð íbúðarlóð þar sem gildandi deiliskipulag heimilar byggingu íbúðarhúss í um 20 m fjarlægð frá veginum. Deiliskipulag Kotabyggðar öðlaðist gildi árið 2014, eftir gildistöku skipulagsreglugerðar nr. 90/2013. Að mati nefndarinnar væri því ósamræmi við byggðamynstur á aðliggjandi svæði að heimila ekki byggingarreit í um 90 m fjarlægð frá Veigastaðavegi í Vaðlaborgum B.

Nefndin bendir jafnframt á að íbúðarsvæðið í Vaðlaborgum B er um 3,3 ha að stærð og um 1,2 ha þess eða um 35%, er innan 100 m frá Veigastaðavegi. Verði ekki heimilað að nýta þann hluta svæðisins til uppbyggingar skerðist nýting lands sem þegar er skilgreint sem íbúðarsvæði í aðalskipulagi. Þá er kostnaður við uppbyggingu innviða, svo sem vegagerð og lagnir, umtalsverður miðað við þann fjölda íbúðarlóða sem tillagan gerir ráð fyrir. Ef byggingarreitur í um 90 m fjarlægð frá veginum verður ekki heimilaður þarf að fækka lóðum enn frekar, sem eykur hlutfallslegan kostnað við uppbyggingu hverrar lóðar.

Nefndin bendir einnig á að tillagan er í samræmi við skilmála rammahluta aðalskipulags um þróun byggðar í Vaðlaheiði, m.a. hvað varðar lágmarksstærð lóða, fjarlægð milli byggingarreita, fjarlægð frá mörkum næsta landnotkunarreits og tengsl lóða við náttúrulegt umhverfi.

3.

S2606019 - Kotabyggð 37 - Beiðni um breytta skráningu á lóð

 

Erindi frá Lofti Ágústssyni, eiganda Kotabyggðar 37 L202765, þar sem óskað er eftir að skráningu lóðarinnar verði breytt úr frístundalóð í íbúðarlóð.

 

Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps bendir á að samkvæmt gildandi deiliskipulagi er lóðin Kotabyggð 37 skilgreind sem íbúðarhúsalóð. Skipulagsnefnd felur SBE að vinna málið áfram.

4.

S2606018 - Sólheimar 3 - Umsókn um byggingareit fyrir bílskúr

 

Erindi þar sem óskað er eftir heimild til byggingar bílskúrs austan við núverandi íbúðarhús að Sólheimum 3. Með erindinu fylgja gögn sem gera ráð fyrir allt að 80 m² bílskúr.

 

 

Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði vísað í grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.

S2608001 - Hallland L152894, Meyjarhóll L152912 og Hátún L229501 - deiliskipulag íbúðarbyggðar á ÍB31 og ÍB32

 

Erindi þar sem lögð er fram skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar íbúðarbyggðar á svæðum ÍB31 og ÍB32 í landi Halllands, Meyjarhóls og Hátúns. Gert er ráð fyrir nýjum íbúðarlóðum og uppbyggingu einbýlishúsa á svæðinu.

 

 

Skipulagsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi skipulagslýsing verði samþykkt og kynnt í samræmi við 2 mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30.