Skipulagsnefnd

2. fundur 03. september 2026 kl. 14:00 - 15:40 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Bjarni Þór Guðmundsson formaður
  • Harpa Barkaróttir
  • Svala Einarsdóttir
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson skipulags og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Hallland áfangi 2 - breyting á deiliskipulagi vegna nýrrar lóðar - S2608006

 

Erindi þar sem lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Halllands áfanga 2 á íbúðarsvæði ÍB15. Breytingin felur í sér nýja lóð, Huldaheima 18, norðan við núverandi lóð nr. 17. Jafnframt er gert ráð fyrir aðkomu að lóðinni sem síðar getur einnig nýst íbúðarsvæði ÍB31 norðan við svæðið.

 

Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað. Nefndin telur ekki rétt að bæta við nýrri lóð innan deiliskipulags ÍB15, enda er svæðið fullbyggt miðað við skipulagsforsendur rammahluta aðalskipulags. Samkvæmt fyrirliggjandi skipulagslýsingu sem samþykkt var til kynningar á fundi sveitarstjórnar þann 18.08.2026 er gert ráð fyrir Hulduheimum 18 innan ÍB31 og telur nefndin því rétt að lóðin verði útfærð samhliða deiliskipulagi þess svæðis.

 

   

2.

Bakkatún 1 - ósk um breytingu á deiliskipulagi - S2608007

 

Erindi frá M11 Byggir ehf. þar sem óskað er eftir heimild til breytingar á deiliskipulagi fyrir lóðina Bakkatún 1. Breytingin felur í sér að í stað tveggja hæða raðhúss verði heimilt að byggja tvö minni fjölbýlishús með samtals átta íbúðum. Með erindinu fylgja tillögur að fyrirhugaðri uppbyggingu á lóðinni.

 

Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað. Nefndin telur að fyrirhuguð breyting úr raðhúsabyggð í tvö fjölbýlishús með samtals átta íbúðum feli í sér of mikla breytingu á húsagerð og þéttleika miðað við gildandi deiliskipulag og þá byggðarmynd sem þar er gert ráð fyrir.

 

   

3.

Tunga - beiðni um heimild til deiliskipulagningar frístundasvæðis F12 - S2608009

 

Erindi þar sem lögð er fram skipulagslýsing, dags. 14.08.2026, unnin af Landslagi ehf. vegna fyrirhugaðs deiliskipulags frístundasvæðis F12 í landi Tungu. Svæðið er um 1,5 ha að stærð og innan þess eru þrjár frístundalóðir, Tunga lóð nr. 1, Tunga lóð nr. 2 og Tunga lóð nr. 3. Með deiliskipulaginu er fyrirhugað að afmarka byggingarreiti, skilgreina aðkomu og setja nánari skipulagsskilmála fyrir svæðið.

 

Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsækjanda verði veitt heimild til að vinna tillögu að deiliskipulagi frístundasvæðis F12 í landi Tungu, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt verði fyrirliggjandi skipulagslýsing, dags. 14.08.2026, samþykkt til kynningar og umsagnar í samræmi við 40. gr. laganna.

Skipulagsnefnd bendir á að frístundasvæðið sé hannað með virðingu við þá náttúru sem er í kringum svæðið.

 

   

4.

Geldingsá - deiliskipulag íbúðarlóða - S2605003

 

Erindi þar sem lögð er fram að lokinni auglýsingu tillaga að nýju deiliskipulagi íbúðarlóða í landi Geldingsár. Tillagan var auglýst á tímabilinu 14. júlí til 27. ágúst 2026 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Alls bárust 12 athugasemdir á auglýsingartíma og eru þær nú lagðar fram til umfjöllunar skipulagsnefndar.

 

Skipulagsnefnd þakkar fyrir þær athugasemdir sem bárust við auglýsingu tillögunnar. Nefndin telur að framkomnar athugasemdir og fyrri skipulagsforsendur svæðisins gefi tilefni til endurskoðunar á umfangi fyrirhugaðrar uppbyggingar og telur ekki forsendur til að fallast á auglýsta tillögu óbreytta.

Skipulagsnefnd mælir með að sveitarstjórn hafni erindinu.

 

   

5.

Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2025-2037 - umsagnarbeiðni - S2506005

 

Erindi frá Eyjafjarðarsveit þar sem óskað er umsagnar um tillögu að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037 en tillagan er í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagaslaga nr. 123/2010 og er umsagnarfrestur til 7. október nk.

 

Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við tillögu að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037.

 

   

6.

Íbúðarbyggð á Svalbarðseyri - breyting á deiliskipulagi vegna farsímamasturs og útivistarstígs - S2608012

 

Erindi þar sem lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar á Svalbarðseyri. Breytingin felur í sér lóð og byggingarreit fyrir farsímamastur ofan sundlaugar auk útivistarstígs sem jafnframt nýtist sem þjónustuvegur að mastrinu.

 

Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi breyting verði afgreidd sem óveruleg breyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin telur að breytingin varði ekki hagsmuni annarra og leggur því til að fallið verði frá grenndarkynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa er falið að fullnusta gildistöku breytingarinnar.

 

   

7.

Foss L152916 - beiðni um staðsetningu rotþróar - S2608010

 

Erindi vegna fyrirhugaðrar fráveitulausnar við frístundahúsið Foss L152916. Fyrir liggja viðbótarupplýsingar frá umsækjanda um hreinsivirkið, fyrirkomulag tæmingar og aðgengi að rotþró.

 

Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi fráveitulausn verði samþykkt, með þeim fyrirvara að umsækjandi tryggi gott og greiðfært aðgengi að rotþró. Einnig að framkvæmdin verði unnin í samráði við HNE.