Dagskrá:
|
1. |
Brekkusel L216012 - stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar - S2609013 |
|
|
Erindi frá eiganda Brekkusels L216012 þar sem sótt er um að stækka byggingarreit um 5 m til norðurs eða um 60 m² svo hægt sé að byggja um 50 m² viðbyggingu við núverandi sumarbústað á lóðinni sbr. meðfylgjandi afstöðumynd frá Stikunni Teiknistofu dags. 20.04.2026. |
||
|
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt. Þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins telur nefndin ekki þörf á grenndarkynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Afgreiðslu málsins er vísað til byggingarfulltrúa. |
||
|
|
||
|
2. |
Hallland L152894, Meyjarhóll L152912 og Hátún L229501 - deiliskipulag íbúðarbyggðar á ÍB31 og ÍB32 - S2608001 |
|
|
Erindi þar sem skipulagslýsing vegna deiliskipulags íbúðarbyggðar á ÍB31 og ÍB32 í landi Halllands, Meyjarhóls og Hátúns er lögð fram á ný að lokinni kynningu. Málið var síðast tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 18. ágúst 2026 þar sem samþykkt var að lýsingin yrði kynnt. Sjö umsagnir bárust á kynningartímabilinu og eru þær nú til umfjöllunar. Jafnframt liggja fyrir vinnslutillögur frá skipulagsráðgjafa. |
||
|
Skipulagsnefnd þakkar fyrir framkomnar umsagnir. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að afgreiðslu málsins verði frestað. Jafnframt óskar nefndin eftir að fá fund með skipulagshönnuði, lóðahafa og skipulagsfulltrúa þar sem farið verður yfir umræður á fundinum. |
||
|
|
||
|
3. |
Fjárhagsáætlun 2027-2030 - S2609002 |
|
|
Kynning á fjárhagsáætlunarvinnu og umræða um möguleg skipulagsverkefni á kjörtímabilinu. |
||
|
Skipulagsnefnd tók til möguleg skipulagsverkefni sem hægt væri að leggja áherslu á þegar vinnu við nýtt aðalskipulag lýkur. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00.