Dagskrá:
|
1. |
Leifshús sælureitur - S2306004 |
|
|
Erindi vegna deiliskipulags smáhýsabyggðar í landi Leifshúsa en málið var síðast á fundi sveitarstjórnar 25.02.2025 þar sem sveitarstjórn samþykkti ósk landeiganda um að fallið yrði frá aðalskipulagsbreytingu vegna frístundabyggðar sem upphaflega var unnin samhliða. Nú liggur fyrir uppfærð deiliskipulagstillaga frá skipulagshönnuði. |
||
|
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að uppfæra deiliskipulagstillöguna í samræmi við umræður á fundinum og að henni verði síðan vísað í auglýsingu skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
||
|
|
||
|
2. |
Geldingsá lóð (L172656) - umsókn um breytingu á staðfangi - S2609020 |
|
|
Erindi frá eiganda Geldingsár lóðar, L172656, þar sem sótt er um að staðfangi landeignarinnar verði breytt í Heiðarborg. |
||
|
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt og að staðfangi Geldingsár lóðar (L172656) verði breytt í Heiðarborg. |
||
|
|
||
|
3. |
Geldingsárhlíð 3 L230244 - fyrirspurn um skiptingu fasteignar í tvær - S2610003 |
|
|
Erindi frá Hermanni Herbertssyni f.h. eigenda Geldingsárhlíðar 3 með fyrirspurn um að skipta fasteignum á lóðinni í tvær. Á lóðinni standa 2 einbýlishús (tveir matshlutar) á einu fasteignanúmeri en eigendur vilja gera eignaskiptayfirlýsingu svo að þessari fasteign sé skipt upp í tvær þannig að einbýlishúsin yrðu tengd sitthvorri fasteigninni. Ekki yrðu gerðar breytingar á skilmálum deiliskipulagsins eða afmörkun lóðar. |
||
|
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að fallist verði á skiptingu fasteigna á lóðinni í tvær þannig að einbýlishúsin á lóðinni hafi sitthvort fasteignanúmerið, enda er ekki um að ræða breytingu á landnotkun, skipulagi eða afmörkun lóðarinnar. |
||
|
|
||
|
4. |
Úthlutun lóða í Valsárhverfi - S2007003 |
|
|
Erindi frá skrifstofustjóra. Farið yfir lausar lóðir og stöðu úthlutaðra lóða í Valsárhverfi. |
||
|
Skipulagsnefnd skorar á sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps, með vísan til 1. gr. og 4. gr. reglna um lóðaveitingar á Svalbarðseyri, að taka formlega afstöðu til þeirra lóða þar sem frestir eru liðnir og engar framkvæmdir hafnar af hálfu lóðarhafa. |
||
|
|
||