Skólanefnd

15. fundur 12. september 2016

15. fundur skólanefndar Svalbarðsstrandarhrepps 2014 - 2018 haldinn í Ráðhúsinu Svalbarðseyri, mánudaginn 12.09.2016 kl. 16:15.

Mættir voru, Elísabet Ásgrímsdóttir aðalmaður, Sigurður Halldórsson aðalmaður, Elín Svava Ingvarsdóttir varamaður, Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri, Inga Sigrún Atladóttir skólastjóri Valsárskóla / Álfaborgar, Arndís Sigurpálsdóttir fulltrúi kennara, Bryndís Hafþórsdóttir fulltrúi leikskólakennara og Svanbjört Bjarkadóttir fulltrúi foreldra grunnskólans.

Fundargerð ritaði: Elín Svava Ingvarsdóttir
Sigurður Halldórsson stýrði fundi þar sem formaður hafði tilkynnt um veikindi.

Dagskrá:

Almenn mál 1609002F

Grunnskóli, leikskóli og tónlistarskóli.

a) Staða mála: Mikið að gera heilt yfir en gengið vel. Tónlistarskólinn tók til starfa 1. sept eftir sameiningu við grunnskólann og gengur vel. Aðsókn í tónlistarskólann er góð. Ungbarnadeild (Hreiður) er tekin til starfa við leikskólann og gengur mjög vel.

b) 1609001 Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags. Lögð fram ein umsókn um námsvist. Skólanefnd samþykkir umsóknina.

c) Innra mat: Skýrsla lögð fram til kynningar ásamt áætlum um úrbætur þar sem þörf er.

 

Fundi lokið kl. 18:00