Skólanefnd

6. fundur 27. maí 2019

Fundinn sátu: Inga Sigrún Atladóttir, Sigurður Halldórsson, Árný Þóra Ágústsdóttir og Inga Margrét Árnadóttir.

Fundargerð ritaði: Björg Erlingsdóttir, Sveitastjóri.

Einnig mætt á fundin áheyrnarfulltrúar:

Hilmar Dúi Björgvinsson

Þórdís Þórólfsdóttir

Hjalti Már Guðmundsson

Helgi Viðar Tryggvason

Dagskrá:

1.

Úttekt á stöðu leikskóla og grunnskóla eftir sameiningu - 1903011

 

Ráðgjafi mætir á fundinn

 

Ráðgjafi mætir á fundinn og fer yfir helstu niðurstöður. Viðtöl hafa verið tekin við starfsmenn í Valsárskóla og Álfaborg og næstu skref eru að meta hvað úr viðtölunum kom, skoða hvort sameiningin skilaði sparnaði og hvort unnið hafi verið eftir þeim markmiðum sem fram voru sett í upphafi sameiningarvinnu. Helstu niðurstöður snúa að efnahagslegum þáttum sameiningar, faglegum þáttum og upplifun starfsmanna á báðum stöðum. Von er á fullfrágenginni skýrslu á næstu vikum og málinu er frestar þar til skýrslan verður lögð fram og tekin fyrir á næsta fundi.

     

2.

Lausar stöður vorið 2019 - 1905013

 

Farið yfir auglýsingu starfa við Valsárskóla og Álfaborg

 

Farið yfir auglýsingu starfa sem birt verður í Dagskránni og á heimasíðu sveitarfélagsins í vikunni.

     

3.

Starfsemi félagsmiðstöðvar - 1905014

 

Skipting milli skólastarfs og félagsmiðstöðvar

 

Farið yfir hugmynd um að skilja á milli starfsemi félagsmiðstöðvar og grunnskóla. Nefndin leggur til að umsjón með félagsmiðstöð verði færð undir starfssvið sveitarstjóra.

     

4.

Skóladagatal allra deilda 2019-2020 - 1901025

 

Farið yfir skóladagatal

 

Bætt er við einum starfsdegi í skóladagatal 2019/2020. 2.janúar 2020 verður starfsdagur í leikskólanum. Skóladagatal er að finna á heimasíðu Valsárskóla https://www.onecrm.is/onecrm4/one.aspx?itemid=M5fv4Z031E2MaPxY5knE8g. Árshátíð Valsárskóla er færð til 23.janúar 2020.

     

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:10.