Skólanefnd

35. fundur 12. mars 2026 kl. 16:15 - 18:15 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Hanna Sigurjónsdóttir formaður
  • Árný Þóra Ágústsdóttir
  • Vilhjálmur Rósantsson
Starfsmenn
  • Guðrún Hallfríður Björnsdóttir skólastjóri
  • María Aðalsteinsdóttir skólastjóri
Fundargerð ritaði: María Aðalsteinsdóttir skólastjóri

Dagskrá:

1.

Skóladagatal allra deild Valsárskóla og Álfaborgar - S2004013

 

Erindi frá skólastjórum Álfaborgar og Valsárskóla. Drög af skóladagatölum Álfaborgar og Valsárskóla - 2026-2027 lögð fram til staðfestingar.

 

Skóladagatöl beggja skóla lögð fram og staðfest.

 

Samþykkt

 

   

2.

Skólaferðalag - S2008003

 

Erindi frá skólastjóra Valsárskóla. Reglur um skólaferðalag nemenda í 9. og 10. bekk Valsárskóla kynntar fyrir skólanefnd.

 

Reglur samþykktar og skólastjóra falið að kynna þær fyrir foreldrum. Skólanefnd vill árétta að söfnun er á herðum foreldra og nemenda en ferðalagið er skipulagt og á ábyrgð skólans.

 

Samþykkt

 

   

3.

Starfsmannamál - Almennt - S2206003

 

Erindi frá skólastjóra Valsárskóla. Farið yfir mönnun í grunnskóla á komandi skólaári. Beiðni um aukið starfshlutfall skólaárið 2026-2027.

 

Skólanefnd hefur skilning á aukinni þörf á mönnun í Valsárskóla. Málinu vísað til sveitarstjórnar.

 

Samþykkt

 

   

4.

Skólapúls - S2603007

 

Erindi frá skólastjóra Valsárskóla. Niðurstöður skólapúls frá október og nóvember 2025, kynntar fyrir skólanefnd.

 

Kynntar niðurstöður Skólapúls beggja skóla. Skólanefnd lýsir yfir ánægju með niðurstöður skólapúls fyrir foreldra Álfaborgar.

 

Samþykkt

 

   

5.

Valsárskóli - Innra starf - S2603008

 

Erindi frá skólastjóra Valsárskóla. Skólastjóri kynnir hvernig brugðist er við ófullnægjandi skólasókn á þrepaskiptan hátt í öðrum skólastofnunum.

 

Lagt fram til kynningar.

 

Samþykkt

 

   

6.

Gjaldskrá Álfaborgar - S2506004

 

Erindi frá skólastjóra Álfaborgar - Viðbætur við gjaldskrá.

 

Tekið fyrir með afbrigðum með samþykki allra fundarmanna. Samþykkt var að setja á bleyjugjald 2500 kr. á mánuði. Breytingin tekur gildi eftir sumarlokun sumarið 2026.

 

Samþykkt

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15.