Sveitarstjórn

53. fundur 20. ágúst 2013

Fundargerð
53. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2010-2014, haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, þriðjudaginn 20. ágúst 2013 kl. 20:00.
Fundinn sátu: Guðmundur Bjarnason oddviti, Helga Kvam varaoddviti, Anna Fr. Blöndal ritari, Stefán H. Björgvinsson aðalmaður og Sigurður Halldórsson 1. varamaður.
Fundargerð ritaði: Anna Fr. Blöndal, ritari sveitarstjórnar.

Dagskrá:

1. 1308004F - Skipulagsnefnd - 30
Fundargerð 30. fundar Skipulagsnefndar Svalbarðsstrandarhrepps frá 19. ágúst 2013 var tekin fyrir á 53. fundi Sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps þann 20. ágúst 2013. Sjá afgreiðslu einstakra liða í fundargerð.

1.1. 1209003 - Breyting á Aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 vegna Kotabyggðar

Afgreiðsla skipulagsnefndar á 30. fundi hennar þann 19. ágúst 2013 var staðfest á 53. fundi Sveitarstjórnar þann 20. ágúst 2013. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að breytingartillagan verði send Skipulagsstofnun til staðfestingar sbr 32. gr. skipulagslaga. Niðurstaða sveitarstjórnar verði auglýst og umsagnir um athugasemdir sendar þeim sem þær gerðu.

1.2. 1107010 - Deiliskipulag Kotabyggðar

Afgreiðsla skipulagsnefndar á 30. fundi hennar þann 19. ágúst 2013 var staðfest á 53. fundi Sveitarstjórnar þann 20. ágúst 2013. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að skipulagstillagan verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar sbr. 42. gr. Skipulagslaga. Niðurstaða sveitarstjórnar verði auglýst og jafnframt verði þeim sem athugasemdir gerðu send umsögn og afgreiðsla þeirra.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:55.