Sveitarstjórn

65. fundur 28. maí 2014

Fundargerð

65. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2010-2014, haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, miðvikudaginn 28. maí 2014 kl. 19:00.

Fundinn sátu: Guðmundur Bjarnason oddviti, Helga Kvam varaoddviti, Anna Fr. Blöndal ritari, Eiríkur H. Hauksson aðalmaður, Stefán H. Björgvinsson aðalmaður og Jón Hrói Finnsson sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði: Anna Fr. Blöndal, ritari sveitarstjórnar.

Dagskrá:

1. 1209016 - Breytingar á húsnæði Svalbarðsstrandarhrepps
Farið yfir stöðu mála varðandi innkaup á húsgögnum og val á gólfefnum. Árni Árnason mætti á fundinn með prufur.
Árni Árnason fór yfir möguleika efnanna sem um er að velja. Ákveðið að skoða tvo kosti annars vegar gegnheilt parket og hins vegar harðparket. Árna var einnig falið að fá tilboð í hillur og fundarborð.

2. 1405026 - Umsóknir um sumarstörf 2014
Farið yfir stöðu mála varðandi umsóknir um sumarstörf og ráðningar í þau.
Farið yfir umsóknir sem borist hafa, sveitarstjóri gengur frá ráðningum.

3. 1105027 - Hjólreiðastígur meðfram þjóðvegi 1
Lögð fram skýrsla Landslags ehf. um valkosti varðandi legu hjólreiða- og göngustígs.
Farið yfir fyrirliggjandi tillögur. Samþykkt að halda áfram hönnun stígsins en kostnaðarmeta fyrsta kaflann frá sveitarfélagamörkum í suðri að göngum í gegnum eða meðfram Vaðlareit.

4. 1405024 - Upprekstur á afrétt og viðhald fjallsgirðingar 2014
Lögð fram drög að bréfi um upprekstur í ógirt heimalönd og viðhald fjallsgirðingar.
Borist hefur bréf frá Birgi Stefánssyni f.h. félagsmanna í Heiðarbyggð, félagi sumarhúsaeigenda í landi Geldingsár, þar sem sveitarstjórn er hvött til að leyfa ekki upprekstur búfjár í heiðarlönd fyrr en girðingar eru komnar í lag. Sveitarstjóri svarar erindinu.
Farið var yfir drög að bréfi og dagsetningar upprekstrar ákveðnar. Sveitarstjóri sendir bréf til búfjáreigenda og landeigenda.

5. 1405027 - Aðalfundur Greiðrar leiðar ehf. 2014
Í tölvupósti frá 27. maí 2014 boðar Pétur Þór Jónasson, fyrir hönd Greiðrar leiðar ehf., til aðalfundar félagsins þann 10. júní 2014.
Þar sem fundartíminn er á sama tíma og síðasti fundur núverandi sveitarstjórnar verður enginn fulltrúi frá Svalbarðsstrandarhreppi á aðalfundinum.

6. 1405028 - Opnunartími sundlaugar 2014
Rætt um opnunartíma sundlaugar sumarið 2014.
Ákveðið að hafa opið frá þriðjudegi til föstudags frá kl 15.00 til 19.00 og frá kl.11.00 til 15.00 á laugardögum. Lokað verður á sunnudögum og mánudögum.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:00.