Fundargerð
11. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2014 -2018 haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, miðvikudaginn 12. nóv. 2014 kl. 13:30.
Fundinn sátu: Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri, Valtýr Þór Hreiðarsson oddviti, Guðfinna Steingrímsdóttir varaoddviti, Halldór Jóhannesson aðalmaður, Ólafur Rúnar Ólafsson aðalmaður, Anna Karen Úlfarsdóttir aðalmaður og Harpa Halldórsdóttir skrifstofustjóri.
Fundargerð ritaði: Harpa Halldórsdóttir
Dagskrá:
Þorsteinn og Jón Ari frá KPMG héldu kynningu fyrir fundarmenn.
2. 1407052F - Félagsmálanefnd.
Fundargerð 2. fundar lögð fram til kynningar.
3. 1407042 - Fundargerð 821. fundar stjórnar Sambands íslenskra
Sveitarfélaga kynnt.
4. 1407054 - Safnasafnið – Styrkumsókn.
Óskað er frekari gagna og afgreiðslu frestað til næsta fundar.
5. 1407053 – Haustfundur AFE.
Í tölvupósti þann 5. nóv. er boðað til haustfundar AFE þann 13. nóv. næstkomandi. Sveitarstjóri verður með stutta kynningu.
6. 1407050 - Fjárhagsáætlun 2015.
Fyrsta umræða um fjárhagsáætlun. Sveitarstjóri kynnti drög að helstu tekju- og gjaldaliðum. Óskað eftir að sveitarstjóri leggi fram tillögur að fasteignaskatti og skyldum gjöldum á næsta fundi.
7. 1207001 – Fjallgirðingin.
Sveitarstjóri reifaði hugmyndir um áfangaskiptingu framkvæmda og lagði fram um drög að fyrsta áfanga.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 16:00