Sveitarstjórn

12. fundur 26. nóvember 2014

Fundargerð

12. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2014 -2018 haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, miðvikudaginn 26. nóv. 2014 kl. 13:30.

Fundinn sátu: Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri, Valtýr Þór Hreiðarsson oddviti, Guðfinna Steingrímsdóttir varaoddviti, Ólafur Rúnar Ólafsson aðalmaður, Anna Karen Úlfarsdóttir aðalmaður, Sigurður Halldórsson varamaður og Harpa Halldórsdóttir skrifstofustjóri.

Fundargerð ritaði: Harpa Halldórsdóttir

Dagskrá:

Fundur hófst á kynningu Sigurðar Steingrímssonar og Albertínu Elíasdóttur um FabLab í Eyjafirði.

1.1407057 - Erindi frá Ara Fossdal dags. 24.11.2014 um að stofna nýja lóð út
úr landi Geldingsár. Meðfylgjandi er hnitsett afstöðumynd frá Búgarði dags. 21.11.2014 og grunnteikning.
Sveitarstjórn samþykkir erindið.

2. 1407056F – Skólanefnd.
Fundargerð 5. fundar er staðfest.

3. 1407058 - Fundargerðir nr. 258-260 frá stjórn Eyþings.
Fundagerðirnar lagðar fram til kynningar.

4. 1407054 - Safnasafnið – Styrkumsókn.
Umsókn um 300.000 kr, ferðastyrk er hafnað. Sveitarstjórn leggur til að
Safnasafnið útfæri frekar hugmyndir sem varða nýsköpun
(Hugmyndasmiðja æskunnar ofl.)

5. 1407050 - Fjárhagsáætlun 2015.
Farið yfir drög að fjárhagsáætlun og þeim vísað til seinni umræðu.

6. 1407059 – Farið yfir trúnaðarmál.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið k. 17:00