Sveitarstjórn

37. fundur 22. desember 2015

37. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2014 -2018 var haldinn í Ráðhúsinu Svalbarðseyri, miðvikudaginn 22. desember 2015 kl. 13:30.

Fundinn sátu: Valtýr Þór Hreiðarsson oddviti, Guðfinna Steingrímsdóttir varaoddviti, Ólafur Rúnar Ólafsson aðalmaður, Halldór Jóhannesson aðalmaður, Anna Karen Úlfarsdóttir, Sigurður Halldórsson varamaður, Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri og Harpa Halldórsdóttir skrifstofustjóri.

Fundargerð ritaði: Harpa Halldórsdóttir

Dagskrá:

Gestur fundarins Stefán Sveinbjörnsson ræddi snjómokstur á Svalbarðseyri.

 

Gestur fundarins Árni Ólafsson, arkitekt, ræddi tillögu að deiliskipulagi frá mars 2014 norðan Valsár.

 

1. 1407213 – Styrkumsókn frá Fjölskylduhjálp Íslands vegna

jólasöfnunar 2015.

Þessu erindi er hafnað en þess í stað ákveðið að styrkja Kvenfélag Svalbarðsstrandarhrepps um 100.000 kr. til góðra verka.

 

2. 1407212 – Fundargerð nr. 177 frá Heilbrigðisnefnd Norðurlands Eystra.

Lagt fram til kynningar.

 

3. 1407200 – Fjárhagsáætlun 2016, seinni umræða.

 

Álagningarhlutfall gjalda 2016:

 

Útsvarsprósenta (hámark) 14,52% verður óbreytt frá fyrra ári.

 

Álagningarprósentur fasteignagjalda verða óbreyttar frá fyrra ári:

 

Fasteignaskattur A af fasteignamati 0,385%.

Fasteignaskattur B af fasteignamati 1,32%.

Fasteignskattur C af fasteignamati 1,20%.

Lóðarleiga af fasteignamati lóða 1,75%.

Fráveitugjald/holræsagjald af fasteignamati húss og lóðar 0,19%

 

Vatnsskattur er samkvæmt gjaldskrá Norðurorku.

 

Örorku- og ellilífeyrisþegar fá afslátt samkvæmt reglum Svalbarðsstrandarhrepps, tekjuviðmiðunarmörk hækka um 5%.

 

Sorphirðugjald verður:

 

Fyrirtæki A kr. 34.000.-

Fyrirtæki B kr. 65.000.-

Fyrirtæki C kr. 120.000.-

Minni býli kr. 22.000.-

Stærri býli kr. 65.000.-

Frístundahús kr. 14.000.-

Íbúðarhús kr. 34.000.-

 

Gjaldtaka fyrir losun rotþróa verður óbreytt.

 

Frístundastyrkur barna verður kr. 14.500.-

 

Styrkur til aldraðara og öryrkja vegna snjómokstur verður 41.200.-

 

Aðrar gjaldskrár hækka um 3%. Gjaldskrár verða birtar á heimasíðu hreppsins á næstunni.

 

Farið var yfir drög að fjárhagsáætlun Svalbarðsstrandarhrepps 2016-2019 og gerðar lítils háttar breytingar. Fjárhagsáætlun var því næst samþykkt.

 

Samkvæmt henni verður 2,3 mkr. afgangur af rekstri samstæðunnar 2016. Skatttekjur eru áætlaðar 224,3 mkr. og framlög Jöfnunarsjóðs 65 mkr. Samanlagðar tekjur A- og B-hluta (samstæðu) eru áætlaðar 313 mkr., rekstrargjöld A- og B-hluta 293,4 mkr. og afskriftir á árinu eru áætlaðar um 20,3 mkr. Fjármagnsliðir eru áætlaðir jákvæðir um 3,1 mkr. Fyrirhuguð fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er 108,4 mkr. Handbært fé í árslok 2016 er áætlað 110,2 mkr. og langtímaskuldir sveitarfélagins í árslok eru áætlaðar 50,5 mkr.

 

Árin 2017-2019 er reiknað með óbreyttum tekjum.og rekstrarkostnaði. Fjárfestingahreyfingar árin 2017-2019 eru áætlaðar 10 mkr á ári.

 

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 19:19