Sveitarstjórn

40. fundur 10. febrúar 2016

40. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2014 -2018 var haldinn í Ráðhúsinu Svalbarðseyri, miðvikudaginn 10. febrúar 2016 kl. 16:30.

Fundinn sátu: Valtýr Þór Hreiðarsson oddviti, Guðfinna Steingrímsdóttir varaoddviti, Ólafur Rúnar Ólafsson aðalmaður, Halldór Jóhannesson aðalmaður, Anna Karen Úlfarsdóttir aðalmaður, Inga Árnadóttir varamaður, Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði: Eiríkur H. Hauksson

Dagskrá:

1. 1407222 – Fundargerð nr. 276 frá stjórn Eyþings.

Lagt fram til kynningar.

 

2. 1407220 – Erindi dags. 23. jan. 2016 frá Björgunarsveitinni Tý en þar

óskar Týr eftir láni frá sveitarfélaginu til kaupa á nýju tæki fyrir

björgunarsveitina.

Áður á dagskrá 39. fundar.

Á fundinn mætti Þorgils Guðmundsson formaður björgunarsveitarinnar og

fór yfir málið. Sveitarstjórn samþykkir að veita lán, allt að kr. 2.500.000.

Lánið greiðist til baka á þremur árum.

 

3. 1407224 – Í bréfi dags. 05.02.2016 óska Grænegg ehf og Sólfjörð ehf eftir

samþykki sveitarstjórnar á breytingu á lóðarmörkum lóða í

Sveinbjarnargerði, skv. meðfylgjandi hnitsettum skipulagsuppdrætti.

Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti fyrirhugaðar breytingar.

 

4. 1407225 – Í bréfi dags. 05.02.2016 óskar Haukur Halldórsson eftir

samþykki sveitarstjórnar á breytingu á lóðarmörkum lóða í

Sveinbjarnargerði, skv. meðfylgjandi hnitsettum skipulagsuppdrætti.

Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti fyrirhugaðar breytingar.

 

5. 1407223 – Erindi frá Tækifæri og KEA, tilboð í hlutabréf í Tækifæri, dags.

02.02.2016.

Sveitarstjórn samþykkir að falla frá forkaupsrétti að hlutabréfum

í Tækifæri. Sveitarstjórn tekur tilboði KEA í bréf Svalbarðsstrandarhrepps í

Tækifæri og sveitarstjóra falið að ganga frá sölunni.

 

6. 1407226 – Erindi dags. 08.02.2016 frá Halldóri Jóhannessyni fyrir hönd

Veigastaða ehf, en þar kemur fram að lóðarhafi að Kotabyggð 13 hefur

óskað eftir því að breyta lóðinni úr frístundalóð yfir í íbúðarhúsalóð.

Halldór Jóhannesson vék af fundi undir þessum lið og Inga Árnadóttir

tók sæti hans.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að láta gera grenndarkynningargögn fyrir

þessa breytingu á skipulaginu og kynna hana.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30