Sveitarstjórn

44. fundur 13. apríl 2016

44. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2014 -2018 var haldinn í Ráðhúsinu Svalbarðseyri, miðvikudaginn 13. apríl 2016 kl. 13:30.

 

Fundinn sátu: Valtýr Þór Hreiðarsson oddviti, Guðfinna Steingrímsdóttir varaoddviti, Ólafur Rúnar Ólafsson aðalmaður, Halldór Jóhannesson aðalmaður, Anna Karen Úlfarsdóttir aðalmaður, Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri og Harpa Halldórsdóttir skrifstofustjóri.

Fundargerð ritaði: Harpa Halldórsdóttir

 

Dagskrá:

1. 1407238 – Erindi dags. 11.04.2016 frá Ósafli, en þar óskar Ósafl eftir því

að fá tímabundið leyfi til að lagera efni á túni Halllandsnes sem er norðan

við athafnarsvæði verktaka í suðurhluta sveitarfélagsins. Sjá nánar á

meðfylgjandi skipulagsuppdrætti.

Fjórir stjórnarmenn samþykkja að setja umsókn þessa í grenndarkynningu en einn stjórnarmaður situr hjá.

 

2. 1407239 – Erindi dags. 11.04.2016 frá Ósafli, en þar óskar Ósafl eftir því

að fá tímabundið leyfi til að lagera efni á nýju vegstæði í landi Halllands

sem er sunnan við athafnarsvæði verktaka í suðurhluta sveitarfélagsins.

Sjá nánar á meðfylgjandi skipulagsuppdrætti.

Samþykkt að fresta ákvörðun um að setja þessa umsókn í grenndarkynningu og óska frekari ganga.

 

3. 1407240 – Hafnarsamlag Norðurlands boðar til aðalfundar 11. maí.

Samþykkt að veita Halldóri Jóhannessyni umboð til að mæta á aðalfundinn fyrir hönd svetiarfélagsins.

 

4. 1407241 – Í bréfi dags. 29. mars boðar Molta ehf til aðalfundar18. apríl.

Lagt fram til kynningar.

 

5. 1407242 – Fundargerð nr. 181 frá HNE.

Lagt fram til kynningar.

 

6. 1407237F – Fundargerð 12. fundar skólanefndar.

1.

Valsárskóli / Álfaborg kl. 16:15

 

a) Staða mála.

b) 1407196 Húsnæðismál Tónlistarskólans.

c) 1407236 Trúnaðarmál.

Inga Sigrún Atladóttir kom á fundinn og ræddi málið.

 

2. Tónlistarskóli Svalbarðsstrandar kl. 17:45

a) Staða mála.

b) 1407196 Húsnæðismál Tónlistarskólans.

c) 1407236 Trúnaðarmál.

Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina og felur sveitarstjóra að vinna að tillögu eitt.

7. 140743 – Tekið á dagskrá með samþykki allra fundarmanna. Erindi frá Kvenfélagi Svalbarðsstrandar þar sem óskað er eftir styrk frá sveitarfélaginu til að halda Bryggjufestival n.k. sumar.

Samþykkt að veita 100.000 kr. styrk vegna þessa erindis.

8. 140744 – Tekið á dagskrá með samþykki allra fundarmanna. Ráðstöfun húsnæðis í byggingu að Laugartúni 5-7; Gert er ráð fyrir að mögulegt söluverð stærri íbúðanna (85 fm.) verði 28.200.000 kr. og þeirra minni (64 fm.) 19.600.000 kr. Gert er ráð fyrir að mögulegt leiguverð verði 122.000 kr. á mánuði fyrri stærri íbúðirnar og 91.000 kr. fyrir minni íbúðirnar.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:50