46. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2014 -2018 var haldinn í Ráðhúsinu Svalbarðseyri, miðvikudaginn 25. maí 2016 kl. 13:30.
Fundinn sátu: Valtýr Þór Hreiðarsson oddviti, Guðfinna Steingrímsdóttir varaoddviti, Ólafur Rúnar Ólafsson aðalmaður, Halldór Jóhannesson aðalmaður, Sigurður Halldórsson varamaður, Inga Árnadóttir varamaður, Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri og Harpa Halldórsdóttir skrifstofustjóri.
Fundargerð ritaði: Harpa Halldórsdóttir
Dagskrá:
1. 1407246 – Tillaga að deiliskipulagi í Sólbergslandi norðan Sólheima.
Tekið á dagskrá með samþykki allra sveitarstjórnarmanna sem 1. liður fundarinns.
Ómar Ívarsson skipulagsfulltrúi var gestur fundarins.
Tillaga að deiliskipulagi var kynnt á íbúafundi þann 18. maí s.l. Nokkrar athugasemdir komu fram við tillöguna um að fjöldi lóða væri of mikill og ekki í samræmi við stærð lóða á aðliggjandi íbúðasvæði til suðurs. Jafnframt komu fram athugasemdir um að tillagan miðaði ekki við að ná sérstökum eiginleikum íbúðabyggðar í sveit eins og gert er ráð fyrir í aðalskipulagi.
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins þar sem gögn deiliskipulags eru ekki talin uppfylla skipulagslög nr. 123/2010, m.a. 12. gr. um umhverfismat. Sveitarstjórn telur að tillagan falli ekki nægilega vel að ákvæðum aðalskipulags sem segir að á íbúðasvæðum á þessum stað í sveitarfélaginu verði ekki mótuð hefðbundin bæjarmynd heldur miðað við að ná sérstökum eiginleikum íbúðabyggðar í sveit. Sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa er falið að ræða við umsækjanda um framhald málsins.
2. 1407247 – Ársreikningur Svalbarðsstrandarhrepps fyrir árið 2015. Seinni umræða.
Ársreikningur 2015, ásamt endurskoðunarskýrslu, skuldbindingayfirliti og staðfestingarbréfi stjórnenda, lagður fram. Helstu niðurstöður eru í þús.kr.:
Sveitarsjóður A hluti A og B hluti saman
Rekstrartekjur alls 333.660 338.995
Rekstrargjöld alls 305.133 308.468
Afskriftir 18.443 18.875
Fjám.tekjur og (fjármagnsgjöld) (3.297) (3.697)
Rekstrarniðurstaða 6.786 7.973
Eigið fé í árslok 568.726 574.363
Ársreikningur samþykktur og undirritaður.
3. 1407251 – Erindi dags. 23. apríl frá Fanney Snjólaugardóttur, en þar útskýrir hún af hverju hún sækist ekki eftir áframhaldandi starfi sem tónlistarkennari.
Lagt fram til kynningar.
4. 1407252 – Gestur J. Jensson, kt. 020571-4549, Dálksstöðum, 601 Akureyri, sækir um sem forsvarsmaður fyrir Dálksstaði ehf, kt. 540909-2020, nýtt rekstrarleyfi til sölu gistingar í sumarbústað á Efri-Dálksstöðum, Svalbarðsstrandarhreppi, fnr. 232-3695, 601 Akureyri.
Samkvæmt 10. gr. laga um veitinga- og gististaði nr. 85/2007 og 23. gr. reglugerðar nr. 585/2007 óskar Sýslumaðurinn á Norðurlandi umsagnar sveitarstjórnar um umsókn þessa.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að umrætt rekstrarleyfi verði veitt.
5. 1407229 – Niðurstöður úr grenndarkynningunni „ Hjartað í Vaðlaheiði“.
Halldór Jóhannesson vék af fundi undir þessum lið.
Fyrirhuguð framkvæmd var grenndarkynnt frá 17. mars til og með 18. apríl 2016. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma. Sveitarstjórn samþykkir að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir „Hjartað í Vaðlaheiði“ í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og gögn, með fyrirvara um skriflegt samþykki landeigenda.
6. 1407226 – Niðurstöður úr grenndarkynningunni „ Breyting á Kotabyggð 13 úr frístundalóð í íbúðarhúsalóð“.
Halldór Jóhannesson vék af fundi undir þessum lið.
Tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi var grenndarkynnt frá 17. mars til og með 18. apríl 2016. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma. Sveitarstjórn samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi og felur skipulagsfulltrúa og sveitarstjóra að auglýsa gildistöku hennar.
7. 1407253 – Vinnuskóli Svalbarðsstrandarhrepps 2016.
Laun með orlofi vegna sumarsins 2016 verða þannig:
Dagvinna
14 ára kr.560
15 ára kr.650
16 ára kr.960
Launatafla v. vinnuskólans samþykkt.
8. 1407254 – Boð á aðalfund Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar sem haldinn verður 9. júní 2016.
Sveitarstjóri fer með umboð hreppsins á fundinn.
9. 1407255 – Tekið á dagskrá með samþykki allra sveitarstjórnarmanna.
Sveitarstjórn óskar eftir að Umhverfisnefnd móti tillögur að framtíðarskipulagi losunar á garð- og jarðefnaúrgangi.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 16:10