Sveitarstjórn

49. fundur 22. júní 2016

49. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2014 -2018 var haldinn í Ráðhúsinu Svalbarðseyri, miðvikudaginn 22. júní 2016 kl. 13:00

Fundinn sátu: Valtýr Þór Hreiðarsson oddviti, Guðfinna Steingrímsdóttir varaoddviti, Ólafur Rúnar Ólafsson aðalmaður, Halldór Jóhannesson aðalmaður, Anna Karen Úlfarsdóttir aðalmaður, Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri og Harpa Halldórsdóttir skrifstofustjóri.

Fundargerð ritaði: Harpa Halldórsdóttir

Dagskrá:

  1. 1407268 – Kjörskrá vegna forsetakosninga 2016.

Lögð er fram kjörskrá fyrir Svalbarðsstrandarhrepp. Kjörskrá samþykkt og sveitarstjóra er veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem upp kunna að koma, fram að kjördegi vegna forsetakosninga 25. júní nk. í samræmi við 27. gr. laga um kosningar til Alþingis.

  1. 1407262F – Fundargerð 7. fundar félagsmálanefndar.

Fundargerð staðfest.

  1. 1407263F – Fundargerð 6. fundar umhverfis- og atvinnumálanefndar.

Fundargerð staðfest utan 5. liðar sem er frestað. Óskað er eftir að umhverfisnefnd og sveitarstjóri afli frekara gagna.

  1. 1407264F – Fundargerð 2. fundar kjörnefndar.

Fundargerð staðfest.

  1. 1407265 – Fundargerð nr. 840 frá stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga.

Lagt fram til kynningar.

  1. 1407266 – Tölvupóstur dags. 8. júní frá Sveinbergi Laxdal varðandi

upprekstur á sauðfé í sumarhaga.

Lagt fram til kynningar. Erindinu hefur þegar verið svarað í tölvupósti.

  1. 1407267 – Erindi dags. 14. júní frá Stefáni Tryggvasyni varðandi viðhald fjallsgirðingar.

Lagt fram til kynningar. Sveitarstjóra falið að kanna betur lög, reglugerðir og samþykktir varðandi fjallsgirðingar og ræða við Norðurlandsskóga um hugsanlega skógræktargirðingu.

  1. 1407269 – Tekið á dagskrá með samþykki allra sveitarstjórnarmanna.

Lagt fram erindi frá Marin ehf. vegna tilboðs um skipti á plássi sem er í eigu hreppsins og skúrs sem er í eigu Marin ehf. Að svo stöddu er sveitarstjórn ekki tilbúin að ganga að þessu tilboði.

 

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:30