60. fundur. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2014-2018, haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, miðvikudaginn 11. janúar 2017 kl. 13:30.
Fundinn sátu: Valtýr Þór Hreiðarsson oddviti, Guðfinna Steingrímsdóttir varaoddviti, Halldór Jóhannesson aðalmaður, Ólafur Rúnar Ólafsson aðalmaður, Anna Karen Úlfarsdóttir aðalmaður, Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri og Harpa Halldórsdóttir skrifstofustjóri.
Fundargerð ritaði: Harpa Halldórsdóttir, skrifstofustjóri.
Í upphafi fundar skoðuðu sveitarstjórnarmenn nýjar íbúðir við Laugartún 5-7.
Dagskrá:
| 
 1.  | 
 1701001 - Deiliskipulag norðan Valsár, framhald  | 
|
| 
 Árni Ólafsson arkitekt kynnti nýjustu drög að deiliskipulagi. Samþykkt að halda almenna kynningu fyrir íbúa miðvikudaginn 8. febrúar 2017, kl. 20:00 í Valsárskóla.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 2.  | 
 1701002 - Fundargerð nr. 845 frá stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga  | 
|
| 
 Fundargerðin lögð fram. Í lið nr. 12 er fjallað um umsögn sambandsins um frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða. Sveitarstjórn telur að kynna hefði átt málið betur fyrir sveitarfélögum og hvetur stjórn sambandsins til að gæta að hagsmunum allra sveitarfélaga. Sveitarstjórn tekur undir sjónarmið sem fram koma í umsögn Fjarðarbyggðar um umrætt frumvarp og telur mikilvægt að samræmi sé í lögum er varða skipulagsmál.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 3.  | 
 1701003 - Fundargerð nr. 289 og 290 frá stjórn Eyþings.  | 
|
| 
 Lagt fram til kynningar.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 4.  | 
 1701004 - Fundargerð nr.103 og fundargerð jólafundar frá Byggingarnefnd.  | 
|
| 
 Lagt fram til kynningar.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 5.  | 
 1701005 - Áætluð kostnaðarskipting sveitarfélaga á rekstri HNE 2017  | 
|
| 
 Lagt fram til kynningar.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 6.  | 
 1701006 - Erindi dags. 29.12.2016 frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra en þar óskar hann eftir umsögn sveitarstjórnar á umsókn Hönnu Dóru Ingadóttur, kt. 260560-5739, Smáratúni 9,601 Akureyri,sem sækir um nýtt rekstrarleyfi til sölu gistingar í Smáratúni 9,601 Akureyri.  | 
|
| 
 Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að umrætt rekstrarleyfi verði veitt.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 7.  | 
 1701007 - Ráðning skipulags- og byggingarfulltrúa fyrir byggðasamlag Svalbarðsstrandarhrepps, Eyjafjarðarsveitar, Hörgársveitar og Grýtubakkahrepps  | 
|
| 
 Lagt fram til kynningar.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 8.  | 
 1701008 - Bréf frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi áætlun um að skipta út öllu dekkjakurli fyrir hættuminni efnum á næstu árum  | 
|
| 
 Lagt fram til kynningar.  | 
||
| 
 
  | 
||
| 
 9.  | 
 1701009 - Frístundastyrkur barna var tekinn á dagskrá með samþykki allra sveitarstjórnarmanna.  | 
|
| 
 Samþykkt að hækka frístundastyrk barna 2017 í 21.000 kr.  | 
||
| 
 
  | 
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00.