88. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2014-2018, haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, þriðjudaginn 20. mars 2018 kl. 16.00.
Fundinn sátu: Valtýr Þór Hreiðarsson oddviti, Guðfinna Steingrímsdóttir varaoddviti, Halldór Jóhannesson aðalmaður, Ólafur Rúnar Ólafsson aðalmaður (var í síma), Anna Karen Úlfarsdóttir aðalmaður og Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Eiríkur H Hauksson, sveitarstjóri.
| 
 Dagskrá:  | 
 
  | 
| 
 
  | 
|
| 
 1.  | 
 Tilboð í Tjarnartún 4-6 1803013  | 
| 
 Áður á dagskrá 87. fundar.  | 
|
| 
 Sveitarstjórn hefur undanfarna mánuði kannað ýmsar hugmyndir varðandi byggingaframkvæmdir sveitarfélagsins á byggingu íbúðarhúsnæðis við Tjarnartún. Tilboð hefur borist frá Þ.J. verktökum ehf. í byggingu tveggja parhúsa við Tjarnartún. Fyrirhugaðar framkvæmdir myndu hefjast í vor. Sveitarstjórn hefur kynnt sér efni og innihald tilboðsins og telur þetta vera mjög heppilegan kost í stöðunni þar sem mikill húsnæðisskortur er í sveitarfélaginu. 
 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00.  |