Sveitarstjórn

89. fundur 04. apríl 2018

89. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2014-2018, haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, 4. apríl 2018 kl. 17:00.

Fundinn sátu: Valtýr Þór Hreiðarsson oddviti, Guðfinna Steingrímsdóttir varaoddviti, Ólafur Rúnar Ólafsson aðalmaður, Anna Karen Úlfarsdóttir aðalmaður, Sigurður Halldórsson 1. varamaður, Eiríkur H. Hauksson sveitarstjóri, Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri og Harpa Halldórsdóttir skrifstofustjóri.

Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon, skrifstofustjóri.

Dagskrá:

Guðfinna vék af fundi undir þessum lið

1.

Aðalskipulagsbreyting í Heiðarholti - 1804004

 

Sveitarstjórn samþykkir að setja í auglýsingu endanlega tillögu að breytingu á aðalskipulagi í Heiðarholti skv. meðfylgjandi skipulagsuppdrætti. Sveitastjórn felur jafnframt sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna.

 

   

Guðfinna vék af fundi undir þessum lið

2.

Deiliskipulag í landi Heiðarholts - 1804005

 

Sveitarstjórn samþykkir að setja í auglýsingu endanlega tillögu á deiliskipulagi í landi Heiðarholts skv. meðfylgjandi skipulagsuppdrætti. Sveitastjórn felur jafnframt sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna.

 

   

3.

Ársreikningur 2017 fyrir Moltu ehf - 1804006

 

Lagt fram til kynningar

 

   

4.

Fallorka - Beiðni um ábyrgð Svalbarðsstrandarhrepps vegna lántöku - 1804009

 

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandahrepps samþykkir hér með að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns Fallorku ehf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 650.000.000, með lokagjalddaga þann 5. desember 2032, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Nær samþykki sveitarstjórnar jafnframt til undirritunar lánssamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir. Fallorka ehf. er 100% í eigu Norðurorku hf. Eignarhlutur Svalbarðsstrandahrepps í Norðurorku hf. er 0,46% og er hlutdeild sveitarfélagsins í þessari ábyrgð því kr. 2.990.000.

Er lánið tekið til byggingar nýrrar 3,3 MW vatnsaflsvirkjunar í Glerá ofan Akureyrar, sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Andra Teitssyni kt. 241266-3709, framkvæmdastjóra Fallorku ehf., veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Svalbarðsstrandahrepps að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

 

   

5.

Ósk frá skólastjóra um hugsanlega nafnabreytingu á skólanum - 1804010

 

Í ljósi þess hve stutt er eftir af kjörtímabilinu hefur sveitastjórn ákveðið að vísa þessu máli til næstu sveitastjórnar. Að mati sveitastjórnar þarfnast slík mál mikillar umræðu innan samfélagsins og vandaðs undirbúnings.

 

   

10.

Íbúafundur - 1804011

 

Íbúafundur verður haldinn í Valsárskóla laugardaginn 21. apríl nk. hefst klukkan 10:30 og lýkur fyrir 13:00. Sjá nánar í Ströndung og á vefsíðu hreppsins www.svalbardsstrond.is.

 

   

6.

Umhverfis- og atvinnumálanefnd - fundagerð 13. fundar - 1804008

 

Drög að nýrri umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið.

 

Lagt fram til kynningar. Sveitastjórn lýsir ánægju sinni með vinnu nefndarinnar og drögin og hefur ákveðið að drögin verði kynnt fyrir íbúum á íbúðafundi.

 

   

7.

Fundargerð nr. 858 frá stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga - 1804007

 

Lagt fram til kynningar

 

   

8.

Fundargerð nr. 304 frá stjórn Eyþings - 1804003

 

Lagt fram til kynningar

 

   

9.

fundargerðir 197-199 frá Heilbrigðisnefnd Norðurlandssvæðis eystra - 1804002

 

Lagt fram til kynningar

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.