Sveitarstjórn

14. fundur 24. janúar 2019

Fundargerð

14. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2018-2022, haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, 24. janúar 2019 kl. 14:00.

Fundinn sátu: Valtýr Þór Hreiðarsson, Guðfinna Steingrímsdóttir, Ólafur Rúnar Ólafsson, Anna Karen Úlfarsdóttir, Fannar Freyr Magnússon, Gestur J. Jensson, Björg Erlingsdóttir og Vigfús Björnsson.

Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon, Skrifstofustjóri.

 

Dagskrá:

1.

Aðalskipulagstillaga fyrir Geldingsá - 1809002

 

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi

 

Málinu er frestað

     

2.

Aðalskipulag 2020- - 1901003

 

Farið yfir kostnaðar- og verkáætlun

 

Til máls tóku: BE, GJ, VH, AKÚ, GS og ÓRÓ

Sveitarstjóra er falið að leita eftir tilboðum í aðalskipulagsbreytingar.

     

3.

Húsnæðisáætlun Svalbarðsstrandarhrepps - 1901020

 

Stjórnvöld hafa sett fram kröfur á sveitarfélög um að skila húsnæðisáætlunum til að varpa ljósi á stöðu húsnæðismála í sveitarfélaginu. Húsnæðisáætlunin þarf að taka tillit til næstu fjögurra og átta ára í senn ásamt því að uppfæra þarf áætlunina árlega.

 

Til máls tóku: BE

Sveitarstjórn samþykkir að ganga að tilboði frá Ráðrík. Kostnaður færist á kostnaðarliðinn sérfræðiþjónusta.

     

4.

Fjárhagsáætlun 2019 - 1810018

 

Gjaldskrá sveitarfélagsins 2019 lögð fram til staðfestingar.

 

TIl máls tók FFM

Til staðfestingar.

Álagningarhlutfall gjalda 2019:

Útsvarsprósenta (hámark) 14,52% verður óbreytt frá fyrra ári.

Álagningarprósentur fasteignagjalda verða óbreyttar frá fyrra ári:

Fasteignaskattur A af fasteignamati 0,385%.
Fasteignaskattur B af fasteignamati 1,32%.
Fasteignaskattur C af fasteignamati 1,20%.
Lóðarleiga af fasteignamati lóða 1,75%.
Fráveitugjald/holræsagjald af fasteignamati húss og lóðar 0,19%

Vatnsskattur er samkvæmt gjaldskrá Norðurorku.

Örorku- og ellilífeyrisþegar fá afslátt samkvæmt reglum Svalbarðsstrandarhrepps, tekjuviðmiðunarmörkin eru eftirfarandi:
Tekjumörk eru sem hér segir:
Fyrir einstaklinga
a) með tekjur allt að kr. 3.373.710,- 100% afsláttur
b) með tekjur á bilinu kr. 3.373.701,- til 3.633.185,- 75% afsláttur
c) með tekjur á bilinu kr. 3.633.186,- til 3.892.660,- 50% afsláttur
d) með tekjur á bilinu kr. 3.892.661,- til 4.152.670,- 25% afsláttur

Fyrir hjón og samskattað sambýlisfólk
a) með tekjur allt að kr. 4.723.515,- 100% afsláttur
b) með tekjur á bilinu kr. 4.723.516,- til 5.086.780,- 75% afsláttur
c) með tekjur á bilinu kr. 5.086.781,- til 5.450.045,- 50% afsláttur
d) með tekjur á bilinu kr. 5.450.046,- til 5.813.310,- 25% afsláttur


Sorphirðugjald verður:

Sorpgjald, íbúðir 43.700 kr.
Sorpgjald, frístundahús 17.825 kr.
Sorpgjald, stærri býli 82.800 kr.
Sorpgjald, minni býli 28.175 kr.
Sorpgjald, fyrirtæki A 43.700 kr.
Sorpgjald, fyrirtæki B 82.800 kr.
Sorpgjald, fyrirtæki C 177.675 kr.

Gjaldtaka fyrir losun rotþróa verður óbreytt.

Gripagjald hækkar um 50 % og verður.
Nautgripir kr. 600 pr. stk.
Svín kr. 410 pr. stk.
Hross kr. 225 pr. stk.
Sauðfé kr. 105 pr. stk.
Hænur kr. 11 pr. stk.


Frístundastyrkur barna verður kr. 30.000-

Styrkur til örorku- og ellilífeyrisþega vegna snjómokstur verður 44.500.- en tekjutengdur með sömu viðmiðunarmörkum og reglur um afslátt af fasteignaskatti.

Aðrar gjaldskrár hækka um 3-5 %.
Gjaldskrár hafa verið birtar á heimasíðu.

Nokkrir punktar um fjárhagsáætlun 2019.

Samkvæmt henni verður 6,5 mkr. afgangur af rekstri samstæðunnar 2019. Skatttekjur eru áætlaðar 269 mkr. og framlög Jöfnunarsjóðs 128 mkr. Samanlagðar tekjur A- og B-hluta (samstæðu) eru áætlaðar 431,3 mkr., rekstrargjöld A- og B-hluta 396 mkr. og afskriftir á árinu eru áætlaðar um 27,1 mkr. Fjármagnsliðir eru áætlaðir neikvæðir um -1,4 mkr. Fyrirhuguð fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er 139 mkr. Handbært fé í árslok 2019 er áætlað 44,5 mkr. og langtímaskuldir sveitarfélagins í árslok eru áætlaðar 87,6 mkr.

     

5.

Almenningssamgöngur á vegum Eyþings - 1308009

 

Með opnun Vaðlaheiðarganga breytast leiðir almenningssamgangna. Stjórn Eyþings óskar eftir hugmyndum að lausnum frá sveitarfélaginu og viðræðum um lausnir til skemmri og lengri tíma.

 

Til máls tóku: BE, VH, ÓRÓ, AKÚ, GS og GJ

Sveitarstjóra er falið að ræða við Eyþing um nánari útfærslu á pöntunarþjónustu fram að vori.

     

6.

Íbúðir í eigu sveitarfélagsins - 1802014

 

Farið yfir áætlanir um sölu íbúða í eigu sveitarfélagsins og endurnýjun leigusamninga.

 

Sveitarstjórn samþykkir að hefja söluferli á íbúð í Laugartúni 7 202.

Sveitarstjórn samþykkir að segja upp núgildandi leigusamning við íbúa í Laugatúni 5 íbúð 101 og íbúa í Laugartúni 7 íbúð 201. Sveitarstjóra er jafnframt falið að endursemja við leigjendur.

     

7.

Útvistun innheimtu - 1901021

 

Inkasso og Motus hafa sent sveitarfélaginu tilboð um innheimtu fyrir hönd sveitarfélagsins. Tilboð kynnt.

 

Til máls tóku: BE FFM
Lagt fram til kynningar

Sveitarstjórn telur ekki þörf á þessari þjónustu að sinni.

     

8.

Valsárhverfi - kynningarmál - 1901004

 

Farið yfir áætlanir í kynningarmálum vegna lóða í Valsárhverfi og tilboð frá N4

 

Til máls tóku: BE, GJ, VH, AKÚ, GS og ÓRÓ

Sveitarstjóra falið að ræða við N4 um nánari útfærslu á tilboði vegna kynningarmála.

     

Guðfinna vék burt

9.

Samstarfssamningur við Vinnuvernd - 1901014

 

Kynning á starfsemi Vinnuverndar og tilboði þeirra um þjónustu trúnaðarlæknis.

 

Til máls tóku: BE, GJ, VH, AKÚ og ÓRÓ

Guðfinna vék af fundi undir þessum lið.

Sveitarstjóra er falið að vinna áfram með málið.

Guðfinna kom aftur inn

     

10.

Dýpkun í höfninni veturinn 2019 - 1901009

 

Ósk um framkvæmdaleyfi frá Hafnarsamlagi Norðurlands. Áætlun um dýpkun í höfninni og losun efnis kynnt. Stefnt er að því að klára verkið fyrir vorið.

 

Til máls tóku: GJ, AKÚ, GS, VH, ÓRÓ

Sveitarstjórn veitir Hafnarsamlagi Norðurlands samþykki sitt til framkvæmda á dýpkun hafnarinnar á Svalbarðseyri.

     

11.

Fyrirspurn um landnýtingu í Helgafelli - 1810007

 

Kynning á hugmyndum forsvarsmanna Alkemia um uppbyggingu Hlédragsseturs í landi Helgafells.

 

Til máls tóku: BE, GJ, VH, AKÚ, GS og ÓRÓ

Sveitarstjóra og byggingarfulltrúa er falið að hafa samband við landeigendur. Sveitarstjórn er jákvæð fyrir erindinu og óskar eftir frekari gögnum.

     

12.

Svalbarðsstrandarhreppur - verkefnastjórn í umhverfismálum - 1901007

 

Kynning á tillögu um starf umhverfisstjóra sveitarfélagsins.

 

Til máls tóku: BE, GJ, VH, AKÚ, GS og ÓRÓ

Sveitarstjórn er jákvæð fyrir þessum hugmyndum en telur ekki tímabært að auka umsvif í rekstri Svalbarðsstrandarhrepps að svo stöddu.

     

13.

Umhverfisstefna - stefnumótun sveitarfélagsins í umhverfismálum - 1811011

 

Umhverfis- og atvinnumálanefnd vísar umhverfisstefnu til sveitarstjórnar til samþykktar

 

Sveitarstjórn samþykkir umhverfisstefnu umhverfis- og atvinnumálanefndar og felur skrifstofustjóra að birta hana á heimasíðu sveitarfélagsins.

     

14.

Byggingarnefnd - Fundargerð nr. 113 - 1812009

 

Fundargerð lögð fram til kynningar

 

Fundargerð var lög fram til kynningar, eftirfarandi mál voru tekin fyrir sem tengdust Svalbarðsstrandarhrepp.

Bent er á að í heiti máls nr. 4 er villa í fyrirsögn málsins. Þar á að standa Heiðarbyggð en ekki Heiðarholt.

4.
Heiðarholt 33 frístundahús 2018 - 1810003
Svanur F. Jóhannsson kt. 040776-4789 sækir um byggingarleyfi vegna byggingar 104,5 fm frístundahúss að Heiðarbyggð 33 í Svalbarðsstrandarhreppi. Meðfylgjandi eru uppdrættir eftir Steinþór H. Steinarsson dags. 2018-10-07.
Byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við mænisstefnu hússins og samþykkir erindið.

9.
Sveinbjarnargerði stjórnsýslukæra 2018 - 1812004
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi stjórnsýslukæru vegna samþykktar byggingarnefndar á byggingarleyfisumsókn vegna endurbyggingar varphænsnaúss í Sveinbjarnargerði í Svalbarsstrandarhreppi dags. 2017-04-26 lagður fyrir fundinn. Úrskurðarnefndin sýknar byggingarnefnd af kærunni.
Lagt fram til kynningar.

     

15.

Fundargerð 314. fundar Eyþings - 1901017

 

Fundargerð lögð fram til kynningar

 

Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

     

16.

Fundargerð 315. fundar Eyþings - 1901016

 

Fundargerð lögð fram til kynningar

 

Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

     

17.

Fundargerð 316. fundar Eyþings - 1901018

 

Fundargerð lögð fram til kynningar

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Vakin er athygli á minnisblaði starfandi framkvæmdarstjóra í máli 7. Þar segir:

Þá á einnig eftir að ræða við sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps
varðandi mögulegar tengingar almenningssamgangna við Svalbarðseyri en með tilkomu
Vaðlaheiðargangna er ekki lengur tenging almenningssamgangna við staðinn.

Líkt og bókað var í máli 1308009 er sveitarstjóra falið að ræða við Eyþing um nánari útfærslu á pöntunarþjónustu fram að vori.

     

18.

Minjasafnið á Akureyri - fundargerðir - 1901008

 

Fundargerðir nr. 1. og 2. lagðar fram til kynningar

 

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

     

19.

Kjaraviðræður - umboð til kjarasamningsgerðar - 1901023

 

Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) falast eftir umboði Svalbarðsstrandarhrepps til að ganga til kjaraviðræðna fyrir hönd hreppsins í komandi kjaraviðræðum.

 

Málið tekið fyrir með afbrigðum.

Til máls tók FFM og BE
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkir að veita Sambandi íslenskra sveitarfélaga (SÍS) umboð sit til kjarasamningsgerðar í komandi kjaraviðræðum.

     

20.

Deiliskipulagstillaga Sunnuhlíðar dags. 2. apríl 2014 - 1808006

 

Mál tekið fyrir með afbrigðum. Afgreiðsla þessarar athugasemdar var frestað a síðasta sveitarstjórnafundi.

Sveitarstjórn fjallar um athugasemd sem barst frá Vegagerðinni við auglýsta deiliskipulagstillögu fyrir Sunnuhlíð og lýtur að fjarlægð milli vegtenginga á heimreiðum.

 

Sveitarstjórn vísar í ákvæði í kafla 9.2.1. í veghönnunarreglum Vegagerðarinnar útgefið 2010. Þar segir fjarlægð milli vegtenginga þar sem aksturshraði sé minni en 70 km/klst skuli að lágmarki vera 50 m.

Sveitarstjórn telur að með tilliti til staðhátta megi búast við því að aksturshraði sé að jafnaði ekki meiri en 40 km/klst, en vegurinn sem um ræðir sé mjór, brattur og stuttur.

Sveitarstjórn telur því að athugsemd sendanda gefi ekki tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.

 
 

Gestir

 

Vigfús Björnsson - 16:30

     

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00.