Sveitarstjórn

18. fundur 19. mars 2019

18. fundur

Fundinn sátu: Gestur J. Jensson, Anna Karen Úlfarsdóttir, Guðfinna Steingrímsdóttir, Ólafur Rúnar Ólafsson, Björg Erlingsdóttir og Fannar Freyr Magnússon.

Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon, Skrifstofustjóri.

 

Dagskrá:

1.

Geldingsá-Tillaga að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi - 1806015

 

Innsendar athugasemdir og tillögur að svörum lagðar fram

 

Málinu er frestað fram til næsta fundar vegna fjarveru skipulags- og byggingafulltrúa.

     

Fylgiskjöl málsins eru trúnaðarskjöl
Guðfinna vék af fundi við afgreiðslu málsins

2.

Ráðning þroskaþjálfa-iðjuþjálfa við Valsárskóla - 1903014

 

Málið tekið fyrir með afbrigðum með samþykki fundarmanna: Valsárskóli óskar eftir að ráðinn verði þroskaþjálfi/iðjuþjálfi tímabundið til tveggja ára.

 

Sveitastjórn samþykkir að starfsmaður sé ráðinn tímabundið fram á vor. Staðan endurmetin í lok skólaárs. Skrifstofustjóra er falið að taka saman kostnað vegna ráðningar nýs starfsmanns og leggja fyrir á næsta fundi.

 
 

Gestir

 

Inga Margrét Árnadóttir - 14:00

     

3.

Stjórnsýslu skoðun 2018 - 1903010

 

Stjórnsýsluúttekt KPMG fyrir árið 2018 - fyrstu drög kynnt

 

Sveitarstjóri fór yfir samantekt athugasemda sem eru leiðbeinandi fyrir þau verkefni sem framundan eru.

     

5.

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga - fjárfestingar og skuldbindingar - 1903009

 

Bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum lagt fram til kynningar

 

Farið var yfir bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga og sveitarstjóra og endurskoðanda falið að svara bréfunum.

     

6.

Brunavarnir - Slökkvilið Akureyrar - 1903008

 

Til kynningar: umræður á fundi fulltrúa sveitarstjórna við Eyjafjörð um brunavarnir og stækkun þess svæðis sem Slökkvilið Akureyrar sinnir og hugmyndir um stofnun byggðasamlags um reksturinn.

 

Lagt fram til kynningar

     

8.

Hafnarsamlag Norðurlands - uppfærður stofnsamningur - 1902014

 

Aðalfundur Hafnarsamlags Norðurlands verður haldinn 9. maí klukkan 15:00. Fundarboð barst í tölvupósti 14.03.2019

 

Ólafur Rúnar Ólafsson og Björg Erlingsdóttir sveitastjóri eru fulltrúar Svalbarðsstrandahrepps á fundinum.

     

4.

Úttekt á stöðu leikskóla og grunnskóla eftir sameiningu - 1903011

 

Málinu vísað frá skólanefnd til sveitarstjórnar. Á fundi skólanefndar var farið yfir tilboð sem bárust um úttekt. Tilboð bárust frá Rannsóknarstofnun HA, Tröppu og Starfsgæði ehf. Skólanefnd leggur til að samið verði við Starfsgæði ehf, tryggt verði að gert sé ráð fyrir spurningakönnun og viðtölum í úttektinni. Óskað er eftir viðauka og málinu vísað til sveitarstjórnar.

 

Sveitarstjórn samþykkir ákvörðun skólanefndar um að ráða Starfsgæði ehf. til að framkvæma úttektina. Áætlaður kostnaður er 922.000 kr. Til að koma til móts við eftirfarandi kostnað er bókaður viðauki við fjárhagsáætlun. Fluttar eru 922.000 kr af lið 0421-2880 yfir á lið 0411-3390 með viðauka í fjárhagsáætlun.

 
 

Gestir

 

Inga Margrét Árnadóttir - 14:20

     

7.

Útboð skólaaksturs 2019 - 1902017

 

Málinu vísað frá skólanefnd. Á fundi skólanefndar var farið yfir og texti útboðs vegna skólaaksturs samþykktur. Málinu vísað til sveitarstjórnar.

 

Sveitarstjórn samþykkir útboðstexta og felur sveitarstjóra að auglýsa útboðið.

 
 

Gestir

 

Inga Margrét Árnadóttir - 14:40

     

9.

Aðalfundur Moltu ehf. 29. mars 2019 - 1903005

 

Fundarboð vegna aðalfundar og sveitarstjórn tilnefnir fulltrúa á fundinn.

 

Ólafur Rúnar Ólafsson verður fulltrúi Svalbarðsstrandahrepps á aðalfundinum.

     

13.

Umhverfis- og atvinnumálanefnd - 5 - 1903001F

 

Fundargerð lögð fram til kynningar

 

13.1

1811010 - Heimasíða Svalbarðsstrandarhrepps

   
 

13.2

1610103 - Gámasvæðið og umgengni um það

   
 

13.3

1902001 - Spurningakönnun - sorphirða

   
 

13.4

1810028 - 2019 áherslur í umhverfismálum

   
 

13.5

1903002 - Kynning á frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 251993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 931995 um matvæli og lögum nr. 221994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru

   
 

13.6

1811011 - Umhverfisstefna - stefnumótun sveitarfélagsins í umhverfismálum

   
     

14.

Skólanefnd - 05 - 1903004F

 

Fundargerð skólanefndar lögð fram til kynningar

 

14.1

1902017 - Útboð skólaaksturs 2019

   
 

14.2

1901026 - Álfaborg - skýrslur skólarskrifstofu og fjölskylduráðgjafa

   
 

14.3

1901025 - Skóladagatal allra deilda 2019-2020

   
 

14.4

1308006 - Mönnun leikskólans Álfaborgar 2013-14

   
 

14.5

1903011 - Úttekt á faglegu starfi Valsárskóla og Álfaborgar eftir sameiningu

   
     

10.

Fundargerð 317. fundar Eyþings - 1902022

 

Fundargerð 317. fundar Eyþings lögð fram til kynningar

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

     

11.

Flokkun - stjórnarfundur í Norðurá - 1902005

 

Fundargerðir frá stjórnarfundi Flokkunar 13. mars og aðalfundi Flokkunar lagðar fram til kynningar

 

Fundargerð lögð fram til kynningar

     

12.

Fundargerð 231. fundar Norðurorku - 1903007

 

Fundargerð 231. fundar Norðurorku lögð fram til kynningar

 

Fundargerð lögð fram til kynningar

     

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00.

 

 

Gestur J. Jensson

Anna Karen Úlfarsdóttir

Guðfinna Steingrímsdóttir

Ólafur Rúnar Ólafsson

Björg Erlingsdóttir

Fannar Freyr Magnússon