Sveitarstjórn

9. fundur 18. október 2018

Fundargerð

09. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2018-2022, haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, 18. október 2018 kl. 14:00.

Fundinn sátu: Gestur J. Jensson, Guðfinna Steingrímsdóttir, Ólafur Rúnar Ólafsson, Anna Karen Úlfarsdóttir, Árný Þóra Ágústsdóttir, Fannar Freyr Magnússon og Björg Erlingsdóttir.

Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon, Skrifstofustjóri.

 

Dagskrá:

1.

Gámasvæðið og umgengni um það - 1610103

 

Umgengni og merkingar á gámasvæðinu þarf að bæta

 

Málinu er vísað til umhverfis- og atvinnumálanefndar.

     

2.

Samningur um snjómokstur á Svalbarðseyri til þriggja ára. - 1612001

 

Farið yfir gildandi samning og mokstur utan þeirra svæða sem samningurinn tekur til

 

Sveitarstjóra er falið að auglýsa íbúafund um hvernig snjómokstursmálum skuli háttað. Lagt er til með að hann fari fram þar næsta mánudaginn 29.10.18 klukkan 20:00.

     

3.

Staðsetning á nýjum tipp - 2018 - 1810019

 

Velja þarf nýja staðsetningu á tipp

 

Málinu er vísað til umhverfis- og atvinnumálanefndar.

     

4.

Fjárhagsáætlun 2019 - 1810018

 

Fjárhagsáætlunarvinna hafin með umræðu um tekjustofna

 

Skipulag kynnt hvernig vinna við fjárhagsáætlun ársins mun fara fram. Sveitarstjórn samþykkir tímaramma sem unnið verður efir í áætlunargerð. F

Farið var lauslegu yfir hvernig horfur eru með tekjustofna sveitarfélagsins eru árið 2019.

Sveitarstjórn samþykkir að halda óbreyttri álagningu á fasteignagjöldum.

     

7.

Aukafjárveiting til Eyþings - 1810015

 

Aukafjárveiting til EYÞINGS vegna tímabundinnar ráðningar framkvæmdarstjóra

 

Sveitarstjórn samþykkir fjárveitinguna til Eyþings en óskar jafnframt eftir sundurliðun á hvernig þessi upphæð er fengin út.

     

10.

Deiliskipulag í landi Halllands - 1611020

 

Deiliskipulag Halllandi til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun

 

Athugasemdafrestur vegna auglýsingar tillögu að deiliskipulagi íbúðarsvæðis ÍB15 í landi Halllands skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 var til 20. ágúst sl. og barst eitt erindi á auglýsingartíma tillögunnar.

Sendandi erindisins er Vegagerðin og afgreiðir sveitarstjórn einstakar athugasemdir sem fram eru settar á eftirfarandi hátt:
a. Vegagerðin gerir athugasemd við að tillaga að skipulagi hafi ekki verið stofnuninni til umsagnar á fyrri stigum skipulagsvinnu. Ennfremur gerir Vegagerðin alvarlega athugasemd við að framkvæmdarleyfi vegna framkvæmdarinnar hafi verið veitt þann 13. maí 2014án samráðs við stofnunina.

Afgreiðsla sveitarstjórnar: Umrætt deiliskipulag tekur til lands í einkaeigu og var vinnsla skipulagsins á höndum landeiganda og hans ráðgjafa sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þegar unnið var að útfærsluvegtengingar hafði landeigandi munnlegt samáð við Vegagerðina. Skilningur landeiganda var sá að í því samráði fælist samþykki stofnunarinnar við vegtengingu eins og hún kom fram á skipulagsuppdrætti. Sveitarstjórn fellst á að bagalegt sé að samráð við Vegagerðinahafi ekki verið í því formi sem lýst er í gr. 40 í skipulagslögum nr. 123/2010 og leggur sveitarstjórn ríka áherslu á að samráð við umsagnaraðila við skipulagsgerð sé ávallt skjalfest og rekjanlegt.
b. Vegagerðin gerir athugasemd við að tengin nýrrar íbúðargötu við Veigastaðaveg sé á skipulagi sýnd of nærri þjóðvegi 1 og fer fram á að tengingu sé hliðrað til austurs um 20-30 m til austurs af tilliti til umferðaröryggis. Vegagerðin bendir á að skv. slysakortiSamgöngustofu séu umferðaróhöpp tíð á umræddum stað og að inn- og útakstur úr útsýnisstað handan þjóvegar rýri auk þess umferðaröryggi á þessum stað. Því sé ekki ásættanlegt að víkja frá kröfu um 50 m lágmarksfjarlægð frá gatnamótum að fyrstu vegtengingu.

Afgreiðsla sveitarstjórnar: Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að vegtengingu á skipulagsuppdrætti sé hliðrað 20-30 m upp eftir Veigastaðavegi svo fjarlægð frá gatnamótum Veigastaðavegar og þjóðvegar 1 sé fullnægjandim.t.t. umferðaröryggis. Sveitarstjórn bendir á að um sé að ræða land í einkaeigu og því snúi það að landeiganda og Vegagerðinni að semja um flutning vegtengingar sem þegar er til staðar.

Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa að láta vinna ofangreinda breytingu á skipulagsuppdrætti og senda skipulagstillöguð að því búnu í yfirferð til Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

     

11.

Ósk um stofnun nýrrar lóðar úr landi Sunnuhlíðar skv meðfylgjandi hnitsettri teikningu frá Búgarði - samtals 3,7 hektarar. - 1810010

 

Sveitarstjórn þarf lögum samkvæmt að samþykkja á skráningu nýrra staðfanga

 

Fyrir fundinum liggur erindi frá Valtý Hreiðarssyni þar sem óskað er samþykkis sveitarstjórnar á eftirfarandi nafngiftum vegna skráningar staðfanga á húsakosti í landi Sunnuhlíðar:

Húsakostur á landeign L222242:
Eldra íbúðarhús: Sunnuhlíð
2 gistiíbúðir í fyrrum fjárhúsum: Sunnuhlíð 2a, Sunnuhlíð 2b
3 frístundahús norð-austan við útihús: Sunnuhlíð 2c, 2d, 2e
Húsakostur á landeign L152940:
Íbúðarhús: Sunnuhlíð 3

Sveitarstjórn samþykkir erindið.

     

5.

Fundargerð nr. 863 frá stjórn Sambands ísl. sveitafélaga - 1810016

 

Til kynningar

 

Lagt fram til kynningar

     

6.

Fundargerð nr. 864 frá stjórn Sambands ísl. sveitafélaga - 1810017

 

Til kynningar

 

Lagt fram til kynningar

     

8.

Fundargerð 311. fundar Eyþings - 1810014

 

Til kynningar

 

Lagt fram til kynningar

     

9.

Fundarboð - aðalfund Mak 2018 - 1810020

 

Tilnefna þarf fulltrúa á aðalfund Mak

 

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að vera fulltrúi Svalbarðsstrandahrepps á fundinum. Varafulltrúar eru skipaðir Anna Karen Úlfarsdóttir og Árný Þóra Ágústsdóttir.

     

Málið tekið fyrir með afbrigðum með samþykki fundarmanna

12.

Hjólreiða og göngustígur - 1609009

 

Erindi frá Vaðlaheiðargöngum vegna frágangs og umfram efnis sem hægt er að nýta sem uppfyllingu í stígakerfi

 

Sveitarstjórn er samþykk þessu. Jafnframt er sveitarstjóra falið að fá undirritað samþykki landeiganda fyrir hjólreiða- og göngustígnum frá göngum og til Akureyrar. Sveitarstjóra er falið að vinna áfram að framgangi verksins.

Sveitarstjórn ítrekar að vegurinn frá göngum og til Akureyrar sé stórhættulegur fyrir hjólreiða- og göngufólk og brýnt að vinna að úrbótum við veginn sem fyrst.

     

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00.