Sveitarstjórn

26. fundur 13. ágúst 2019

1.

Kotabyggð 46 - gistileyfi - 1907007

 

Umsókn um gistileyfi Kotabyggð send til umsagnar frá sýslumanni

 

Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um gistileyfi í Kotabyggð 46.

     

2.

Hólasandslína 3 skipulags og matslýsing - 1907008

 

Frestur til að skila inn athugasemdum eða ábendingum vegna lagningar Skipulags- og matslýsingar Hólasandslínu 3, er 16. ágúst 2019. Svalbarðsstrandarhreppur er umsagnaraðili.

 

Sveitarstjórn gerir engar athugasemdir við skipulagslýsinguna.

     

3.

Valsárhverfi - Borgartún - 1906005

 

Götuteikningar Borgartúns lagt fram til kynningar

 

Teikningar og hnit á lagt fram til kynningar.

     

4.

Skilti og merkingar við Vaðlaheiðargöng - 1905024

 

Lagt fram til kynningar.

 

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að bjóða hótelum eða heilsársgistiaðilum að taka þátt í gerð upplýsingaskiltis um þjónustu á þjóðvegi 83 frá göngum að Víkurskarði.

     

5.

Helgafell - 1711009

 

Á fundi sveitarstjórnar nr. 24 var óskað eftir uppáskrifuðu leyfi frá landeiganda Hamarstúns og hnitsettri staðsetningu vegar sem fyrirhugað er að leggja að Helgafelli. Auk þess var málinu vísað í grenndarkynningu á grundvelli 13 gr. skipulagslaga og ákveðið að erindið skyldi samþykkt ef ekki bærist andmæli á grenndarkynningartímabili.

 

Umbeðið leyfi frá umboðsmanni landeiganda Hamarstúns hefur nú borist sveitarfélaginu auk þess sem fyrir liggur að ekki bárust andmæli frá hagsmunaaðilum á grenndarkynningatímabili. Erindið er því samþykkt og er skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfi.

     

6.

Útsýnispallur í Vaðlaheiði - 1401020

 

Forhönnun á áninga- og bílastæði í Vaðlaheiði lögð fram

 

Lagt fram til kynningar

     

7.

Valsárhverfi gatnagerð sumar 2019 - 1907006

 

Farið yfir framkvæmdir sumarsins

 

Framkvæmdir sumarsins lagðar fram til kynningar.

     

8.

Valsárhverfi - framkvæmd - 1810024

 

Velja þarf staðsetningu póstkassa fyrir Valsárhverfi. Gert er ráð fyrir að póstkassar verði nýttir þar til byggð þéttist.

 

Sveitarstjórn ákveður að póstkassarnir skulu settir á bílastæði við suðurenda tjarnar.

     

9.

Jafnréttisáætlun 2019-2023 - 1908004

 

Jafnréttisáætlun 2019-2023 lögð fram til samþykktar

 

Sveitarstjórn samþykkir jafnréttisáætlun og hún verður send jafnréttisstofu.

     

10.

Útboð - Snjómokstur 2019-2022 - 1908003

 

Útboð vegna snjómokstur 2019-2022. Útboðsgögn lögð fram til samþykktar

 

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að auglýsa eftir tilboðum í snjómokstur.

     

12.

Útboð skólaaksturs 2019 - 1902017

 

Skólaakstur 2019-2022. Auglýst var eftir tilboðum og eitt tilboð barst vegna skólaaksturs.

 

Sveitarstjórn samþykkir tilboð frá SBA Norðurleið. Sveitarstjóra er falið að ganga frá samningi.

     

14.

Valsárhverfi - Borgartún - 1906005

 

Farið yfir fyrirhugaðar framkvæmdir við Borgartún

     

19.

Launað námsleyfi - 1906020

 

Mál tekið fyrir með afbrigðum. Tillögur að námssjóði lagðar fram til kynningar auk mannauðsstefnu og samþykkt um námsleyfi starfsfólks Svalbarðsstrandarhrepps

 

Lagt fram til kynningar. Málinu frestað til næsta fundar.

     

21.

Þingsályktun um styrkingu sveitarstjórnarstigsins - 1908006

 

Tekið fyrir með afbrigðum. Viðbrögð minni sveitarfélaga við lögbundinni sameiningu sveitarfélaga með færri en 1000 íbúa. Bréf frá sveitarstjóra Grýtubakkahrepps lagt fram til kynningar.

 

Lagt fram til kynningar

     

20.

Flugklasinn 66N - 1407092

 

Tekið fyrir með afbrigðum. Nýlega birtist á Samráðsgátt stjórnvalda Grænbók með drögum að flugstefnu fyrir Ísland. Opnað var fyrir umsagnir 26. júlí og er opið til 16. ágúst. https://samradsgatt.island.is/oll-mal/&Cases/Details/?id=1456

 

Sveitarstjórn óskar eftir að frestur sé veittur á umsóknum

     

11.

Fundargerð 232. fundar Norðurorku - 1907001

 

Fundargerð 232. fundar Norðurorku lögð fram til kynningar

     

13.

Fundargerð 236. fundar Norðurorku - 1907005

 

Fundargerð 236. fundar Norðurorku lögð fram til kynningar

     

15.

Fundargerð 234. fundar Norðurorku - 1907003

 

Fundargerð 234. fundar Norðurorku lögð fram til kynningar

 

Lagt fram til kynningar.

Vakin er athygli á mál 3 í fundargerðinni.

Vaðlaböð staða verkefnisins. Erla mannauðsstjóri NO sem er stjórnarmaður í Vaðlaböðum fór yfir stöðu verkefnisins. Fram kom að gerðar voru frumtillögur arkitekta um baðstaðinn sem ekki urðu í anda þess sem lagt var upp með, en unnið var út frá verðlaunahugmynd Stefáns Tryggvasonar. Fundað hefur verið með landeigendum Halllandsness en staðarval hefur þó ekki verið niðurneglt. Aðilar að Vaðlaböðum hafa mismunandi sýn á tímalínu verkefnisins og er skoðun sumra að of hægt gangi. Mikilvægt er í framhaldinu að finna og komast í samband við frumkvöðul sem gæti keyrt verkefnið áfram. Hér verður þó að hafa þolinmæði og líta til sambærilegra verkefna sem unnin hafa verið og tekið langan undirbúningstíma. Til upplýsinga.

     

16.

Fundargerð 233. fundar Norðurorku - 1907002

 

Fundargerð 233. fundar Norðurorku lögð fram til kynningar

 

Lagt fram til kynningar

     

17.

Fundargerð 235. fundar Norðurorku - 1907004

 

Fundargerð 235. fundar Norðurorku lögð fram til kynningar

 

Lagt fram til kynningar.

     

18.

Bréf frá Örnefnanefnd vegna enskra nafna á íslenskum stöðum - 1908005

 

Mál tekið fyrir með afbrigðum. Bréf frá Örnefnanefnd vegna enskra nafna á íslenskum stöðum, lagt fram til kynningar.

 

Lagt fram til kynningar.

     

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.

 

 

Gestur J. Jensson

Anna Karen Úlfarsdóttir

Valtýr Þór Hreiðarsson

Ólafur Rúnar Ólafsson

Árný Þóra Ágústsdóttir

Björg Erlingsdóttir

Fannar Freyr Magnússon