Sveitarstjórn

93. fundur 15. júní 2022 kl. 13:00 - 16:00 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Gestur Jensson oddviti
  • Anna Karen Úlfarsdóttir varaoddviti
  • Ólafur Rúnar Ólafsson
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Hanna Sigurjónsdóttir
Starfsmenn
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Ráðning sveitarstjóra - 1806009

 

Staða sveitarstjóra Svalbarðsstrandarhrepps er í auglýsingarferli. Umsóknarfrestur er til og með 19.júní. Farið yfir næstu skref ráðningarferlis.

 

Fulltrúi Hagvangs, Geirlaug Jóhannsdóttir, mun leiða viðtöl við umsækjendur og munu Gestur Jensson, Anna Karen Úlfarsdóttir og Bjarni Þór Guðmundsson vera fulltrúar sveitarfélagsins í ferlinu.

 

   

8.

Fasteignamat 2023 - 2206005

 

Tilkynning um fasteignamat 2023 lagt fram til kynningar.

 

Þjóðskrá Íslands birti fasteignamat ársins 2023 1. júní síðastliðinn. Fasteignamat í Svalbarðsstrandarhrepp hækkar að meðaltali 13,90 %.

 

   

2.

Gatnagerð á Svalbarðseyri 2022 - 2204014

 

Tvö tilboð bárust í verkið Valsárhverfi-yfirborðsfrágangur-malbikun.

 

Tvö tilboð bárust í verkið Yfirborðsfrágangur Valsárhverfis - malbikun gatna og gangstétta. Bjóðendur eru: Malbikun Akureyrar (86,3% af kostnaðaráætlun) og Malbikun Norðurlands (89,4% af kostnaðaráætlun)
Sveitarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Malbikun Akureyrar kt. 690598-2059. Oddvita og varaoddvita er falið að ganga frá samningum við verktaka.

 

   

3.

Frágangur á göngu- og hjólastíg - 2111010

 

Farið yfir verkstöðu göngu- og hjólastígs í Vaðlareit.

 

Frágangur á göngu- og hjólastíg um Vaðlareit gengur vel, stígurinn verður heflaður
og lagt á hann jöfnunarlag á næstu dögum en ráðgert er að malbika hann 2023.
Verktakar eru að vinna við frágang og malbikun á tengingu Veigastaðavegar og Grenivíkurvegs.

 

   

4.

Frístundasvæði í landi Meyjarhóls og Halllands - 2204004

 

Borist hafa umsagnir frá Vegagerðinni, Norðurorku og Árna Ólafssyni hönnuði aðalskipulags.

 

Sveitarstjórn fjallar um umsagnir um erindið sem borist hafa frá Vegagerðinni og Árna Ólafssyni hjá Teiknistofu arkitekta, höfundi gildandi aðalskipulags sveitarfélagsins. Sveitarstjórn ítrekar beiðni um ítarlegri gögn um áformin sem sett var fram við umfjöllun á 89. fundi sveitarstjórnar þann 26. apríl sl. Sveitarstjórn kallar ennfremur eftir gögnum sem sýna fram á að fráveita frá fyrirhuguðum íbúðar- og frístundasvæðum samræmist markmiðum um fráveitukerfi sem fram koma í kafla 6.2.2. í greinargerð Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020.

Sveitarstjórn frestar afgreiðslu erindisins.

 

   

5.

Laun sveitarstjórnar - 1806010

 

Laun sveitarstjórnar 2022-2026

 

Sveitarstjórn frestar málinu til næsta fundar og felur skrifstofustjóra að útbúa drög að samþykkt um kjör fulltrúa í stjórnum og nefndum Svalbarðsstrandarhrepps.

 

   

6.

Stytting vinnuvikunnar - 2011012

 

Vinnuhópur í Valsárskóla hefur unnið að tillögu vegna styttingu vinnuvikunnar hjá félagsmönnum FG. Niðurstöður vinnuhópsins lagðar fyrir sveitarstjórn.

 

Sveitarstjórn frestar málinu og óskar eftir skólastjóra Valsárskóla á næsta sveitarstjórnarfund til að fara yfirmálið.

 

   

7.

Ströndungur - fréttabréf - 2206004

 

Umsjónarmaður Ströndungs óskar eftir að sveitarstjórn taki ákvörðun um framtíð fréttabréfsins.

 

Sandra Einarsdóttir umsjónarmaður Ströndungs hefur óskað eftir að hætta sem umsjónarmaður Ströndung og biður sveitarstjórn að taka ákvörðun um framtíð fréttabréfsins. Sveitarstjórn mun gefa Ströndungi frí fram á haust þar til framtíð fréttabréfsins verður ákveðin.
Sveitarstjórn þakkar jafnframt Söndru Einarsdóttir fyrir vel unnin störf.

 

   

9.

2022 fundargerðir stjórnar Norðurorku - 2202007

 

274. og 275. fundargerðir stjórnar Norðurorku lagðar fram til kynningar.

 

Lagt fram til kynningar

 

   

10.

Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022 - 2201013

 

908. og 909. fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lagðar fram til kynningar.

 

Lagt fram til kynningar

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00.