Sveitarstjórn

96. fundur 30. ágúst 2022 kl. 13:00 - 15:30 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Gestur Jensson oddviti
  • Anna Karen Úlfarsdóttir varaoddviti
  • Ólafur Rúnar Ólafsson
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Hanna Sigurjóndóttir
Starfsmenn
  • Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
  • Vigfús Björnsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Fráveitumál sumarhúsa í Vaðlaborgum og Veigahalli - 2008004

 

Árið 2020 barst erindi frá Rekstrarfélagi Vaðlaborga og Veigahalls vegna fráveitumála sumarhúsa. Niðurstöður skipulags- og byggingafulltrúa kynntar fyrir sveitarstjórn.

 

Farið yfir drög af svarbréfi vegna erindis Rekstrarfélags Vaðlaborga og Veigahalls. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að svara erindi rekstrafélagsins.

 

   

Anna Karen Úlfarsdóttir vék af fundi undir næsta lið.

2.

Sólberg - Deiliskipulag 2021 - 2111003

 

Athugasemdafrestur vegna auglýsingar aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir íbúðarbyggð í landi Sólbergs rann út 2. ágúst sl. og bárust þrjú erindi á auglýsingartímabilinu.

 

Athugasemdafrestur vegna auglýsingar aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir íbúðarbyggð í landi Sólbergs rann út 2. ágúst sl. og bárust þrjú erindi á auglýsingartímabilinu. Sveitarstjórn fjallar um innkomin erindi í þeirri röð sem á eftir fer.

1. erindi, sendandi Vegagerðin

Athugasemd a) Sendandi bendir á að mikið er af tengingum við Grenivíkurveg er og stutt á milli þeirra á þessu svæði. Því er ekki svigrúm til að bæta við fleiri tengingum verði frekari uppbygging á svæðinu  eða aðliggjandi  svæðum.  Því þarf í framtíðinni að vera mögulegt  að tengja við nýjan veg verði frekari uppbygging.

Afgreiðsla sveitarstjórnar: Sveitarstjórn samþykkir að kvöð um aðkomurétt að lóðum og landi á skipulagssvæðinu og ofan þess sé bætt við deiliskipulagið. Ennfremur verði áréttuð í deiliskipulaginu krafa aðalskipulags um að tryggja skuli aðgengisrétt um svæðið vegna göngu- og hjólastíga (kafli 4.3.3 í greinargerð Aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020).

2.erindi, sendandi Norðurorka.

Athugasemd a) Sendandi bendir á að veitulagnir og dælustöð séu á skipualgssvæðinu.

Afgreiðsla sveitarstjórnar: Sveitarstjórn samþykkir að veitulagnir og dælustöð á svæðinu séu merktar inn á skipulagsuppdrátt.

Athugasemd b) Sendandi áréttar að ef færa þarf veitulagnir vegna framkvæmdaráforma falli kostnaður vegna færslunnar á þann sem breytinganna óskar.

Athugasemd sveitarstjórnar: Sveitarstjórn samþykkir að áréttað skuli í greinargerð deiliskipulagsins að ef færa þurfi núverandi lagnir á svæðinu vegna framkvæmdaáforma þá beri framkvæmdaraðilinn kostnað vegna breytinganna.

Ekki eru gerðar athugasemdir við auglýstar skipulagstillögur í erindi Minjastofnunar.

Sveitarstjórn samþykkir að auglýstum aðal- og deiliskipulagstillögum skuli breytt eins og fram kemur í afgreiðslu á athugasemdum 1a, 2a og 2b, og að svo breyttar skipulagstillögur séu samþykktar skv. 1. mgr. 32. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að annast uppfærslu skipulagsgagna og að svo búnu fullnusta gildistöku skipulaganna.

 

   

3.

Hallland 15 - 2205004

 

Fyrir fundinum liggur erindi frá Rögnvaldi Harðarsyni sem fyrir hönd lóðarhafa Halllands 15 sækir um breytingu á byggingarreit lóðarinnar. Erindinu fylgir uppdráttur frá Rögnvaldi dags. 26.01.2022

 

Sveitarstjórn samþykkir að erindinu sé vísað í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta tímabil grenndarkynningar ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu telst erindið samþykkt.

 

   

4.

Leifshús - umsögn vegna umsóknar byggingarleyfis - 2208017

 

Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar óskar eftir umsögn sveitarstjórnar vegna byggingarleyfi í landi Leifshúsa.

 

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að umrætt byggingarleyfi verði veitt.

 

   

5.

Ráðning starfsmanns í Álfaborg - 2208015

 

Beiðni frá leikskólastjóra um aukið stöðugildi vegna fjölgunar barna í leikskólanum Álfaborg.

 

Sveitarstjórn samþykkir beiðni leikskólastjóra um að fjölga um eitt starfsgildi vegna fjölgunar barna í leikskólanum.

 

   

6.

Bókasafn Svalbarðsstrandarhrepps - 2009005

 

Erindi frá Ingu Árnadóttur starfsmanni bókasafns vegna reksturs bókasafns og nýtingu húsnæðis.

 

Sveitarstjórn fór yfir erindi bréfsins. Framtíðar skipulag bókasafnsins verður mótað samhliða fjárhagsáætlunarvinnu sem hefst í september.

 

   

7.

Samningur N4 - SSNE fh sveitarfélaga 2022 - 2208012

 

Meðfylgjandi eru samningsdrög að samningi milli N4 og sveitarfélaga innan SSNE. Í drögunum er gert ráð fyrir að SSNE muni gera og undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélaganna.

 

Samningur lagður fyrir sveitarstjórn. Sveitarstjórn samþykkir að veita sveitarstjóra umboð til að vinna málið áfram í samvinnu með SSNE.

 

   

8.

Ráðning sveitarstjóra - 1806009

 

Ráðningarsamningur sveitarstjóra lagður fram til samþykktar.

 

Sveitarstjórn samþykkir ráðningarsamninginn.

 

   

9.

Fjárhagsáætlun 2023-2026 - 2208014

 

Drög að dagskrá fjárhagsáætlunarvinnu kynnt fyrir sveitarstjórn.

 

Hafinn er undirbúningur vegna vinnu við fjárhags- og framkvæmdaáætlun næsta árs.

 

   

10.

Fundargerð stjórnar SSNE 2022 - 2208013

 

39. fundargerð stjórnar SSNE árið 2022.
Lagt fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Aukaþing SSNE verður haldið 23. september næstkomandi.Fulltrúar Svalbarðsstrandarhrepps á Aukaþinginu eru Gestur J. Jensson oddviti og Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri.

Gestur J. Jensson fer með kjörbréf fyrir hönd Svalbarðsstrandarhrepps.

 

   

11.

2022 Hafnarsamlag fundargerðir - 2202008

 

Fundargerð stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands nr. 271 lögð fram til kynningar

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

12.

Fundargerð HNE 2022 - 2208016

 

Fundargerðir nr. 223,224 og 225 stjórnar HNE, lagðar fram til kynningar.

 

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

 

   

Sveitarstjórn samþykkir að taka fyrir mál frá skipulags og byggingarfulltrúa fyrir með afbrigðum.

13.

Hótel Sveinbjarnargerði viðbygging 2022 - 2208018

 

Byggingarfulltrúi fer fram á umsögn sveitarstjórnar um byggingarleyfisumsókn Sólfjörð Hótel ehf. vegna viðbyggingar við Hótel Sveinbjarnargerði. Erindinu fylgja uppdrættir frá Ragnari Guðmundssyni hjá Kollgátu dags. 2022-03-30.

 

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við byggingaráformin.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30.