Sveitarstjórn

99. fundur 11. október 2022 kl. 13:00 - 14:30 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Gestur Jensson oddviti
  • Anna Karen Úlfarsdóttir varaoddviti
  • Ólafur Rúnar ólafsson
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Hanna Sigurjónsdóttir
Starfsmenn
  • Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri
  • Fannar Freyr Magnússon skirfstofustjóri
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Flugklasinn 66N - 1407092

 

Erindi frá Flugklasanum Air 66N, beiðni um áframhaldandi stuðning með sérstöku fjárframlagi til þess að halda áfram með verkefnið, að byggja ofan á þann árangur sem náðst hefur og halda áfram að byggja upp heilsárs áfangastað fyrir millilandaflug.Óskað er eftir 300 kr á hvern íbúa á ári í 3 ár (2023-2025)

 

Sveitarstjórn samþykkir áframhaldandi samstarf við Flugklasann Air 66N og samþykkir að greiða félaginu styrk sem samsvarar 300 kr. per íbúa Svalbarðsstrandarhrepps árin 2023-2025.

 

   

2.

Fyrirspurn - 2210001

 

Fyrirspurn frá Kvenfélagi Svalbarðsstrandarhrepps varðandi aðgengi Kvenfélagsins að húsnæði í eigu Svalbarðsstrandarhrepps.

 

Sveitarstjórn vil árétta það að ekki stendur til að byrja rukka Kvenfélag Svalbarðsstrandarhrepps fyrir aðstöðuna í Valsárskóla og er einhuga um það að halda áfram því góða samstarfi sem hún hefur haft við kvenfélagið síðustu ár.

 

   

3.

Laun sveitarstjórnar - 1806010

 

Mál sem var ákveðið að endurskoða samhliða vinnu fjárhagsáætlunar 2022. Sveitarstjóri leggur fram tillögu um breytingar á kjörum sveitarstjórnar fyrir 2023-2026.

 

Sveitarstjórn samþykkti að laun sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna frá 1. nóv, verði sem hér segir:

Oddviti: 21% af þingfararkaupi á mánuði og 2 % af þingfararkaupi fyrir setinn fund.

Aðrir fulltrúar í sveitarstjórn: 7.5 % af þingfararkaupi á mánuði og 2 % af þingfararkaupi fyrir setinn fund.

Varamenn í sveitarstjórn: 2 % af þingfararkaupi fyrir setinn fund.

Formaður nefndar: 2,5 % af þingfararkaupi fyrir setinn fund.

Aðrir nefndarmenn: 1,8 % af þingfararkaupi fyrir setinn fund.

Jafnframt er sveitarstjóra og skrifstofustjóra falið að vinna að samþykkt um kjör fulltrúa í stjórnum, ráðum og nefndum Svalbarðsstrandarhrepps.

 

   

4.

Kvennaathvarf á Akureyri - 2006009

 

Erindi frá kvennaathvarfi um rekstrarstyrk fyrir árið 2022. Í 40 ár hefur Kvennaathvarfið þjónað íslensku samfélagi sem frjáls félagasamtök í náinni samvinnu við opinbera kerfið og er orðið ómissandi hluti af þeirri þjónustu og úrræðum sem við viljum öll geta gengið að. Kvennaathvarfið þjónustar konur af öllu landinu og þær sem koma til viðtals eða dvalar í athvarfið er fjölbreyttur hópur af öllum stéttum þjóðfélagsins. aukin þjónusta við landsbyggðina með opnun athvarfs á Akureyri og opnun áfangaheimilis sem millibilsúrræðis fyrir konur sem gist hafa athvarfið.

 

Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og frestar ákvörðun málsins til næsta fundar.

 

   

5.

Skólanefnd - 22 - 2206001F

 

Sveitarstjórn samþykkir fundargerð skólanefndar nr. 22.

 

5.1

2104002 - Innra mat - Valsárskóli

   
 

5.2

2104003 - Innra mat - Álfaborg

   
 

5.3

2206003 - Starfsmannamál - Almennt

   

 

   

6.

Skólanefnd - 23 - 2209004F

 

Sveitarstjórn samþykkir fundargerð skólanefndar nr. 23.

 

6.1

2010009 - Starfsáætlun Valsárskóla

   
 

6.2

2104005 - Ytra mat Valsárskóla 2021

   
 

6.3

2109015 - Réttur á skólavistun - staðfesting

   
 

6.4

2104003 - Innra mat - Álfaborg

   
 

6.5

2208015 - Ráðning starfsmanns í Álfaborg

   

 

   

7.

2022 fundargerðir stjórnar Norðurorku - 2202007

 

278. fundargerð stjórnar Norðurorku lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

8.

Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022 - 2201013

 

913. fundargerð stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

9.

Tónlistarskóli Eyjafjarðar - fundargerðir 2022 - 2204002

 

Fundargerð skólanefndar Tónlistaskóla Eyjafjarðar no. 140 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

Svalbarðsstrandarhreppur tilnefnir Maríu Aðalsteinsdóttir skólastjóra sem varamann Svalbarðsstrandarhrepps í stjórn Tónlistarskóla Eyjafjarðar.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:30.