Sveitarstjórn

107. fundur 07. febrúar 2023 kl. 13:00 - 14:45 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Gestur Jensson oddviti
  • Anna Karen Úlfarsdóttir varaoddviti
  • Ólafur Rúnar Ólafsson
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Hanna Sigurjónsdóttir
Starfsmenn
  • Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
  • Vigfús Björnsson. byggingarfulltrúi
  • Sigríður Kristjánsdóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon Skrifstofustjóri

Dagskrá:

1.

Hulduheimar 17 - 2211001

 

Mál sem var frestað á 105. fundi sveitarstjórnar. Uppfærð hönnunartillaga vegna áforma í Hulduheimum 17 lögð fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.

 

Fyrir fundinum liggja uppdrættir af fyrirhuguðu húsi á lóðinni Hulduheimum 17 (áður Halllandi 17) sem uppfærðir hafa verið í kjölfar afgreiðslu sveitarstjórnar á athugasemdum sem bárust við grenndarkynningu á fundi nr. 105. Sveitarstjórn telur að með breytingum sem gerðar hafa verið á hönnun hafi verið komið á fullnægjandi hátt til móts við sjónarmið sem fram komu við grenndarkynningu. Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa að fullnusta deiliskipulagsbreytingu 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

2.

Kynning framkvæmdarstj. á starfsemi SSNE - 2302001

 

Framkvæmdarstjóri SSNE, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, mætir til að kynna starfsemi SSNE.

 

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkv.stj. SSNE mætti ásamt Elvu Gunnlaugsdóttur verkefnastjóra og kynntu þær starfsemi samtakanna.

 

   

3.

Boð um þátttöku í Grænum skrefum SSNE - 2302002

 

Sveitarfélögum innan SSNE-svæðisins býðst að taka þátt í Grænum skrefum SSNE. Tilgangur verkefnisins er að efla umhverfisstarf á svæðinu og styðja sveitarfélögin við að uppfylla lögbundnar skyldur í loftslagsmálum.

 

Sveitarstjórn hefur áhuga á að taka þátt í Grænum skrefum SSNE. Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri hefur verið valinn tengiliður Svalbarðsstrandarhrepps við verkefnið og verður það tilkynnt SSNE.

 

   

4.

Samþykktir sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps - 2004007

 

Lögð fram til umræðu tillaga að breytingum á samþykkt um stjórn og fundarsköp Svalbarðsstrandarhrepps eftir yfirferð og athugasemdir KPMG við stjórnsýsluúttekt.

 

Lögð fram til fyrri umræðu breyting á samþykktum um stjórn og fundarsköp Svalbarðsstrandarhrepps. Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi breytingar á samþykktum Svalbarðsstrandarhrepps nr. 125/2021 með síðari breytingum.

Breytingin er vegna auglýsingar um leiðbeiningar um fjarfundi sveitarstjórna nr. 1182/2021. Þar segir í 1.gr:
Markmið leiðbeininga þessara er að setja nánari viðmið um fjarfundi sveitarstjórna, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.
Um heimild til notkunar slíks búnaðar skal kveðið á í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins, sbr.3. og 4. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga.

Í ljósi ofangreinds texta breytist texti 14. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Svalbarðstrandarhrepps og verður eftirfarandi:

14. gr.
Fjarfundir.
Heimilt er einstökum nefndarmanni að taka þátt í fundum sveitarstjórnar, ráða og nefnda með rafrænum hætti í gegnum fjarfundarbúnað skv. 4. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga ef hann er staddur innan sveitarfélags eða er á ferðum innanlands á vegum Svalbarðsstrandarhrepps, en að öðrum kosti skal kalla inn varamann.
Ef nefndarmaður, einn eða fleiri, taka þátt í fundi með fjarfundarbúnaði skal tryggja jafna möguleika allra fundarmanna til þátttöku á fundi og í atkvæðagreiðslu, óskerta möguleika þeirra til að fylgjast með því sem þar fer fram og öryggi samskipta milli fundarmanna.

Sveitarstjórn samþykkir breytinguna og vísar málinu til síðari umræðu.


 

   

5.

Landsþing Samband íslenskra sveitarfélaga - 2001012

 

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 26. janúar 2023 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi boðun 38. landsþings sambandsins sem haldið verður á Grand hóteli í Reykjavík föstudaginn 31. mars nk. kl. 10:00.

 

Gestur Jensson oddviti er landsþingsfulltrúi Svalbarðsstrandarhrepps og mun sækja þingið ásamt sveitarstjóra.

 

   

6.

Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022 - 2201013

 

Fundargerðir 916, 917 og 918 lagðar fram til kynningar.

 

Fundargerðir 916, 917 og 918 lagðar fram til kynningar.

 

   

7.

Fundargerðir HNE - 2208016

 

227. fundargerð stjórnar HNE lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

8.

Fundargerðir stjórnar SSNE - 2208013

 

47. fundargerð SSNE lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

Mál tekið fyrir með afbrigðum með samþykki allra fundamanna.

9.

Heiðarbyggð 35 - 2211003

 

Grenndarkynningartímabili vegna deiliskipulagsbreytingar á lóð Heiðarbyggðar 35 er lokið og barst eitt erindi vegna málsins. Sveitarstjórn fjallar um athugasemdir sem fram koma í erindinu.

 

Sveitarstjórn frestar málinu.