Sveitarstjórn

117. fundur 15. ágúst 2023 kl. 13:00 - 15:00 Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Gestur J. Jensson formaður
  • Bjarni Þór Guðmundsson
  • Anna Karen Úlfarsdóttir
  • Hanna Sigurjónsdóttir
  • Ólafur Rúnar Ólafsson
Starfsmenn
  • Þórunn Sif Harðardóttir sveitarstjóri
  • Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri
  • Vigfús Björnsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Fannar Freyr Magnússon skrifstofustjóri

Dagskrá:

Hanna Sigurjónsdóttir vék af fundi undir næsta lið.

1.

Hótel Natur - umsókn um byggingarreit vegna viðbyggingar - 2307001

 

Erindi frá eigendum Hótels Natur á Þórisstöðum, umsókn um byggingarreit vegna viðbyggingar.

 

Sveitarstjórn samþykkir erindið. Sveitarstjórn telur að erindið varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda sjálfs og fellur því frá framkvæmd grenndarkynningar á grundvelli 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

2.

Kotabyggð 16 - beiðni um deiliskipulagsbreytingu - 2308001

 

Erindi frá lóðarhafa Kotabyggðar 16 að byggingarreitur verði stækkaður um 4 metra til austurs. Erindinu fylgir uppdráttur frá Loga Einarssyni á Kollgátu Arkitektúr.

 

Sveitarstjórn vísar erindinu í grenndarkynningu á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabil ef allir hagsmunaaðilar lýsa því skriflega yfir að ekki sé gerð athugasemd við áformin sem um ræðir. Ef ekki koma fram andmæli á grenndarkynningartímabili telst erindið samþykkt.

 

   

3.

Laugartún 11 - beiðni um byggingarreit fyrir bílskúr og svalir - 2308002

 

Erindi frá Sævari Erni Sveinbjörnssyni, beiðni um byggingarreit fyrir bílskúr og svalir.

 

Sveitarstjórn vísar erindinu í grenndarkynningu á grundvelli 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabil ef allir hagsmunaaðilar lýsa því skriflega yfir að ekki sé gerð athugasemd við áformin sem um ræðir. Ef ekki koma fram andmæli á grenndarkynningartímabili telst erindið samþykkt.

 

   

4.

Erindi til sveitarstjórnar - 2308003

 

Erindi frá Hárinu 1908.

 

Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindi Hársins 1908 ehf. en frestar ákvörðun þar til verkáætlun fyrir nýtt áhaldahús liggur fyrir.

 

   

5.

Jafnréttisáætlun - 1908004

 

Uppfærð jafnréttisáætlun í samræmi við lög og reglugerðir lögð fram til samþykktar.

 

Sveitarstjórn samþykkir Jafnréttisáætlun Svalbarðsstrandarhrepps 2023-2027.

 

   

6.

Málefni fatlaðra - 2202003

 

Drög að samningi um sameiginlegt þjónustusvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlað fólk, þar sem Akureyrarbær er leiðandi sveitarfélag. Um er að ræða endurbættan samning í samræmi við lög og reglugerðir.

 

Sveitarstjórn vísar drögum að samningi til síðari umræðu.

 

   

7.

Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - 2203006

 

Fundargerð embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 57 og 58 lagðar fram til kynningar.
Eftirfarandi mál var tekið fyrir er tengjast Svalbarðsstrandarhreppi.
2. Veigahvammur 2 - einbýlishús 2023 - 2306001
Smíðastubbur ehf. kt. 430220-0550, Margrétarhaga 7, 600 Akureyri, sækir um byggingarleyfi vegna nýbyggingar 238,4 fm einbýlishúss á lóðinni Veigahvammi 2 í Svalbarðsstrandarhreppi. Erindinu fylgja uppdrættir frá HSÁ teiknistofu dags. 2023-06-01.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

8.

Fundargerðir HNE - 2208016

 

Fundargerð stjórnar HNE nr. 230 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

9.

Hafnarsamlag fundargerðir - 2202008

 

Fundargerð Hafnarsamlags Norðurlands nr.280 lögð fram til kynningar.

 

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00.