Dagskrá:
1. |
Landsnet - Mótun kerfisáætlunar 2025-2034 - Umhverfismatsskýrsla - 2504002 |
|
Erindi frá Skipulagsstofnun þar sem óskað er eftir umsögn þinni við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt: |
||
Kerfisáætlun lögð fram til kynningar. Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við kerfisáætlun 2025-2034. |
||
|
||
2. |
Endurskoðun á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2022 - 2210006 |
|
Fyrir fundinum liggur tillaga nýs aðalskipulags sveitarfélagsins, Aðalskipulag Svalbarðsstrandarhrepps 2025-2037, unnin af Atla Steini Sveinbjörnssyni hjá Landslagi dags. 30. apríl 2025. |
||
Sveitarstjórn felur skipulagsfulltrúa að auglýsa vinnslutillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Svalbarðsstrandahrepps fyrir íbúum og hagsmunaaðilum í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. |
||
|
||
3. |
Bakkatún 23 L239136 og Lækjartún 10 L239175 - Umsókn um breytingu á íbúðarfjölda - 2504011 |
|
Erindi liggur fyrir frá lóðarhafa, sem óskar eftir breytingu á íbúðarfjölda í Bakkatúni 23 og Lækjartúni 10. Sótt er um að vera með tvær íbúðir í hvoru húsi fyrir sig, hvor íbúð með sitt fastanúmer. |
||
Sveitarstjórn frestar málinu. |
||
|
||
4. |
Veigahvammur 1 L217588 - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi - 2503011 |
|
Erindi frá lóðarhafa að Veigahvammi 1, sem frestað var á 150. fundi sveitarstjórnar, þann 8. apríl. Um er að ræða ósk um breytingu á deiliskipulagi, þar sem byggingarreit er breytt frá núgildandi skipulagi. Borist hefur breytingarblað frá Landslagi dags. 14. apríl 2025. |
||
Sveitarstjórn samþykkir að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi og vísar erindinu í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu. Skipulagsfulltrúa er falið að fullnusta deiliskipulagsbreytinguna. |
||
|
||
5. |
Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi gistingar II vegna Geldingsárlóð nr 20 - 2505005 |
|
Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Steinu Sig ehf vegna Geldingsár, lóð nr 20 |
||
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við umsókn Steinu Sig ehf um gistileyfi en vekur athygli á að fasteignaskattur á eignina verði færður úr flokki A í C flokk vegna úthlutunar leyfis. |
||
|
||
6. |
Ársreikningur 2024 - 2503023 |
|
Ársreikningur Svalbarðsstrandarhrepps 2024 - seinni umræða. |
||
|
||
|
||
7. |
Fyrirspurn til sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps - 2504006 |
|
Erindi frá Félagi frístundahúsaeigenda í Heiðarbyggð. |
||
Sveitarstjórn getur ekki orðið við erindinu og bendir félaginu á að hafa samband við landeiganda. Sveitarfélagið þjónustar ekki heimreiðar og einkavegi meðal annars með hliðsjónum um jafnræði. Sveitarstjóra falið að svara erindinu. |
||
|
||
8. |
Samningur um ráðgjöf vegna leikskóla. - 2504008 |
|
Erindi frá Akureyrarbæ, samningur við Akureyrarbæ um ráðgjöf vegna leikskóla. |
||
Sveitarstjórn samþykkir samninginn. |
||
|
||
9. |
Áfangastaðastofa Norðurlands - 2505001 |
|
Erindi frá SSNE, drög að endurnýjuðum samningi milli SSNE og sveitarfélagsins um framlög til reksturs Áfangastaðastofu Norðurlands. |
||
Sveitarstjórn samþykkir þjónustusamninginn og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn. |
||
|
||
10. |
Erindi vegna skaðabótaábyrgðar sveitarstjórnar - 2505002 |
|
Erindi frá Stefáni Tryggvasyni. Með erindinu er vakin athygli á að sveitarstjórn er með öllu óheimilt að heimila beit í heimalöndum jarða sem land eiga að Vaðlaheiði. |
||
Sveitarstjórn telur að efnislega varði erindið afréttarmálefni sem hafi verið til umfjöllunar áður. Farið er yfir að í dómi Hæstaréttar í máli nr. 48/2023 frá 15. maí 2024 var gerð grein fyrir skilsmun á afréttarlandi og heimalandi, þar sem afréttur geti verið hvort tveggja innan eða utan eignarlanda og skipting í heimaland, sem undirorpið er sérstakri og meiriháttar nýtingu og afréttarland í takmarkaðri notum, t.d. sumarbeit, sbr. umfjöllun í málgreinum 51, 53 og 54 í dómi Hæstaréttar. Með hliðsjón af 31. gr. laga um afréttarmálefni og fjallskil nr. 6/1986 mun sveitarstjórn þurfa að meta hvort ágangur búfjár sé verulegur eða eins og segir í lagaákvæðinu: „Skal hún þá, ef um verulegan eða óeðlilegan ágang virðist að ræða, skipa fyrir um smölun ágangspenings og rekstur til afréttar eða skilaréttar“. |
||
|
||
11. |
Viðhald vegna gatnagerðar í Valsárhverfi - 2505003 |
|
Erindi frá sveitarstjóra, fara þarf í lagfæringar á röri ofan túns í Valsárhverfi og leiða vatn í farveg. |
||
Sveitarstjórn samþykkir framkvæmdina og felur sveitarstjóra að vinna verkið áfram. |
||
|
||
12. |
Göngustígur frá bílastæði starfsmanna grunn- og leikskóla - 2505004 |
|
Erindi frá sveitarstjóra, fyrir fundinum liggur að ákveða gerð göngustígs á Svalbarðseyri frá bílaplani starfmanna niður að grunn- og leikskóla. |
||
Sveitarstjórn samþykkir að gerður verði göngustígur frá bílastæði að skólabyggingum, sveitarstjóra falið að vinna verkið áfram. |
||
|
||
13. |
Viðaukar 2025 - 2503008 |
|
Sveitarstjóri leggur fram viðauka 02 fyrir sveitarstjórn til samþykktar. Viðaukin er vegna breytingar á launaáætlun og fjölgun verkefna í félagsþjónustu. Framkvæmdaáætlun 2025 uppfærð og framkvæmdum á skólalóð og við Tjarnartún bætt inn í áætlun. Tekjur vegna útsvars endurmetnar miðað við innkomu fyrstu 3 mánuði ársins. |
||
Sveitarstjórn samþykkir viðauka 02 við fjárhagsáætlun 2025 sem gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða ársins verði jákvæð sem nemur 69.567.655 kr. og handbært fé í árslok 2025 verði 60.062.655 kr. |
||
|
||
14. |
Atvinnu- og umhverfismálanefnd - 1 - 2504001F |
|
Sveitarstjórn staðfestir fundargerð Atvinnu- og umhverfismálanefndar. |
||
|
||
15. |
Skipurit skólanna - 2503004 |
|
Mál er frestað var á 149. fundi sveitarstjórnar þann 25. mars 2025. Breytt skipurit Álfaborgar lagt fram til samþykktar. |
||
Sveitarstjórn staðfestir fundargerð skólanefndar. |
||
|
||
16. |
Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - 2203006 |
|
Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr 91 og 92 lagðar fram til kynningar. |
||
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
||
17. |
Fundargerðir Molta ehf - 2411004 |
|
Fundargerð stjórnar Moltu nr. 115 lögð fram til kynningar. |
||
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
||
18. |
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022 - 2201013 |
|
Fundargerðir stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 973, 974, 975, 976 og 977 lagðar fram til kynningar. |
||
Fundargerðir lagðar fram til kynningar. |
||
|
||
19. |
Tónlistarskóli Eyjafjarðar - fundargerðir 2023 - 2204002 |
|
Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Eyjafjarðar nr. 149 lögð fram til kynningar. |
||
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
||
20. |
Fundargerð fulltrúaráðsfundar 19.03.2025 - 2504007 |
|
Lögð fram fundargerð fulltrúaráðsfundar EBÍ frá 19.3.2025. Þá var lagt fram erindi þar sem fram kemur að frá upphafi næsta kjörtímabils munu öll sveitarfélög sem aðild eiga að EBÍ, eiga fulltrúa í fulltrúaráði félagsins. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
21. |
Ársreikningur 2024 - 2504009 |
|
Ársreikningur UMSE lagður fram til kynningar. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
22. |
Fundargerðir HNE - 2208016 |
|
Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr. 241 lögð fram til kynningar. |
||
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
||
23. |
Fundargerðir stjórnar Norðurorku - 2202007 |
|
Fundargerð stjórnar Norðurorku nr. 309 lögð fram til kynningar. |
||
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30