Dagskrá:
|
1. |
Geldingsá - Umsókn um byggingareit og stofnun lóðar - S2511008 |
|
|
Erindi sem tekið var fyrir á fundi sveitarstjórnar 9. desember 2025 sl, þar sem Árholt ehf. óskaði eftir að skilgreindur yrði byggingarreitur fyrir íbúðarhús í landi Geldingsár og stofnun nýrrar frístundalóðar. Erindinu var vísað í grenndarkynningu sem lauk 16. janúar sl. en athugasemdir bárust á grenndarkynningartímabilinu frá Minjastofnun og eigendum Geldingsárhlíðar 5 (L230622) |
||
|
Sveitarstjórn hefur farið yfir umsagnir sem bárust við grenndarkynningu. Að teknu tilliti til ákvæða í gildandi aðalskipulagi og rammahluta aðalskipulags fyrir þróun byggðar í Vaðlaheiði telur sveitarstjórn að áformin feli í sér ráðstöfun lands með skynsömum og hagkvæmum hætti í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Sveitarstjórn felur Skipulags- og byggingarfulltrúa að ganga frá gildistöku breytingarinnar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 |
||
|
|
||
|
2. |
Heiðarsól - Beiðni um deiliskipulagsgerð - S2511012 |
|
|
Erindi frá frá vinnuhópi um uppbyggingu innviða við frístundalóðir í Heiðarsól þar sem óskað er eftir breytingu á núverandi deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Sólbergs. Deiliskipulagsbreytingin fjallar um fráveitu á svæðinu þar sem komið yrði upp lítilli lífrænni hreinsistöð á hverri lóð í stað sameiginlegra rotþróa eins og núverandi skipulag gerir ráð fyrir. |
||
|
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu erindisins. |
||
|
|
||
|
3. |
Sólheimar 10 L225712 - breyting á byggingarreit v.bílskúrsbyggingar - S2404004 |
|
|
Erindi, fyrir fundinum liggur breytingarblað dags. 22.12.25 þar sem byggingarreitur lóðarinnar Sólheima 10 er stækkaður um 7 m til norður vegna bílskúrsbyggingar. Sveitarstjórn vísaði erindinu upphaflega í grenndarkynningu 24.apríl 2024 þar sem engar athugasemdir bárust og deiliskipulagsbreytingin þ.a.l. samþykkt. Þar sem breytingarblaðið hafði aldrei borist var deiliskipulagsbreytingin aldrei auglýst í B-deild Stjórnartíðinda innan árs frá fyrri samþykkt og því er erindið tekið upp að nýju. |
||
|
Sveitarstjórn samþykkir að skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að ganga frá gildistöku breytinga á deiliskipulagi Sólheima í landi Sólbergs í samræmi við 2. mgr. 43. gr. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem áformin hafa áður verið grenndarkynnt án athugasemda. |
||
|
|
||
|
4. |
Húsnæðisáætlun Svalbarðsstrandarhrepps - S1901020 |
|
|
Endurskoðuð húsnæðisáætlun Svalbarðsstrandarhrepps fyrir árið 2026 lögð fram til samþykktar. |
||
|
Sveitarstjórn samþykkir Húsnæðisáætlun Svalbarðsstrandarhrepps fyrir árið 2026. |
||
|
|
||
|
5. |
Ráðgjafasamningur vegna velferðarþjónustu og skólaþjónustu - S2512004 |
|
|
Erindi frá Akureyrarbæ, ráðgjafasamningur vegna velferðar-, fræðslu og frístundaþjónustu Svalbarðsstrandarhrepps, Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps og Hörgársveitar við Akureyrarbæ tekinn til síðari umræðu. |
||
|
Síðari umræðu og afgreiðslu frestað. |
||
|
|
||
|
6. |
Drög að Loftslagsstefnu Norðurlands eystra til umfjöllunar í sveitarstjórnum. - S2601004 |
|
|
Erindi frá SSNE, drög að Loftslagsstefnu Norðurlands eystra til umfjöllunar í sveitarstjórnum. |
||
|
Sveitarstjórn vísar málinu til umfjöllunar hjá atvinnu- og umhverfismálanefnd. |
||
|
|
||
|
7. |
Styrkbeiðni fyrir börn með ME - S2601003 |
|
|
Erindi frá ME félagi Íslands, beiðni um styrk. |
||
|
Sveitarstjórn hafnar erindinu. |
||
|
|
||
|
8. |
Ársskýrsla Héraðsskjalasafnsins á Akureyri 2024 - S2601002 |
|
|
Árskýrsla Héraðsskjalasafnsins á Akureyri fyrir árið 2024 lögð fram til kynningar. |
||
|
Ársskýrsla lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
9. |
Fyrirspurn til sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps varðandi útilistaverk - S2505008 |
|
|
Erindi frá Þórhalli Ingasyni. Beiðni um að sveitarfélagið finni útilistaverkinu Vaðlaheiðarvegamálaverkfærageymslulyklakippuhring stað í sveitarfélaginu. |
||
|
Sveitarstjórn vísar erindinu vil velferðar- og menningarnefnd til umfjöllunar. |
||
|
|
||
|
Anna Karen Úlfarsdóttir vék af fundi undir þessum lið. |
||
|
10. |
Umsögn um tækifærisleyfi - S1801004 |
|
|
Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, ósk um umsögn sveitarstjórnar um veitingu á tækifærisleyfi þann 7. febrúar 2026 í Valsárskóla (þorrablót). |
||
|
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að umrætt tækifærisleyfi verði veitt. |
||
|
|
||
|
11. |
Fundadagatal nefnda Svalbarðsstrandarhrepps - S1911017 |
|
|
Erindi frá sveitarstjóra, tillaga að fundadagatal sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2026 lögð fram til samþykktar. |
||
|
Sveitarstjórn samþykkir fyrirlagða tillögu að fundadagatali 2026. |
||
|
|
||
|
12. |
Fundargerðir stjórnar SSNE árið 2022 - S2201007 |
|
|
Fundargerð stjórnar SSNE nr. 79 lögð fram til kynningar. |
||
|
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
13. |
Fundargerðir HNE - S2208016 |
|
|
Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra nr. 245 lögð fram til kynningar. |
||
|
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
14. |
Hafnarsamlag fundargerðir - S2202008 |
|
|
Fundargerð stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands eystra nr. 303 lögð fram til kynningar. |
||
|
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
15. |
Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa - S2203006 |
|
|
Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 103 og 104 lagðar fram til kynningar. |
||
|
Fundargerð lögð fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
16. |
Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022 - S2201013 |
|
|
Fundargerðir stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 990 og 991 lagðar fram til kynningar. |
||
|
Fundargerðir lagðar fram til kynningar. |
||
|
|
||
|
17. |
Svæðisskipulag Eyjafjarðar 2012-2026 Fundargerðir - S2105001 |
|
|
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar nr 18 ásamt áætlun fyrir árið 2026 lagt fram til kynningar. |
||
|
Fundargerð lögð fram til kynningar. Sveitarstjórn staðfestir fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar fyrir sitt leyti. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00.